Global ETD Search

Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.

Results

Showing 1 to 20 of 24 for “"Sagnfræði"”.

  1. Orðræða Þjóðviljans um uppreisnina í Ungverjalandi árið 1956

    Í ritgerðinni er fjallað um orðræðu Þjóðviljans um uppreisnina í Ungverjalandi árið 1956. Í kjölfar hernaðaríhlutunar Sovétríkjanna tók Þjóðviljinn upp beina gagnrýni á þetta forysturíki sósíalista í fyrsta skipti frá stofnun blaðsins. Velt er upp spurningunni af hverju það hafi gerst og hver …

    u-iceland Repository record for Orðræða Þjóðviljans um uppreisnina í Ungverjalandi árið 1956 (opens in a new tab)

  2. „Vestræn menning stendur og fellur á því að okkur takist að hrista af okkur þetta eiturský.“ Hassfárið mikla: 1970-1974

    Í þessari ritgerð eru félagsfræðikenningar um siðfár notaðar til að skoða það ástand sem kom upp í íslensku samfélagi með tilkomu nýrra fíkniefna í kringum árið 1970, þá sérstaklega í kringum kannabisefni. Færð eru rök fyrir því að lagasetningar og mikil harka lögreglunnar í garð þeirra sem brutu …

    u-iceland Repository record for „Vestræn menning stendur og fellur á því að okkur takist að hrista af okkur þetta eiturský.“ Hassfárið mikla: 1970-1974 (opens in a new tab)

  3. Láki kuldakrumla: umborið flakk 1650-1750

    Ritgerðin fjallar um eðli og umfang flakks á tímabilinu 1650-1750. Tekin verða fyrir dómsmál einstakra flakkara hérlendis og í Englandi. Til að skýra aðstæður, umfang flakks og viðhorf samfélagsins gagnvart því.

    u-iceland Repository record for Láki kuldakrumla: umborið flakk 1650-1750 (opens in a new tab)

  4. Staðarhólskirkja 1200–1700: Auður, tekjur og búskapur

    Þessi rannsókn er hluti af verkefninu Ritmenning íslenskra miðalda sem ætlað er að varpa ljósi á tiltekna staði á Íslandi þar sem ritmenning blómstraði á miðöldum. Eftirfarandi ritgerð er hluti af undirverkefninu sem ber heitið Staðarhóll: Höfuðból í minjum, sögu og sagnaritun. Meginmarkmið …

    u-iceland Repository record for Staðarhólskirkja 1200–1700: Auður, tekjur og búskapur (opens in a new tab)

  5. „Mannúðarstofnun eða ráðningarskrifstofa?“ Móttaka og val á flóttafólki frá Ungverjalandi 1956

    Ritgerðin fjallar um fyrsta hópinn sem fékk pólitískt hæli hér á landi árið 1956, þegar 52 ungverskir flóttamenn komu til Íslands eftir að Sovétmenn brutu á bak aftur uppreisnina í Ungverjalandi sama ár. Í ritgerðinni er varpað ljósi á hvernig þau sem hingað komu voru valin og sýnt fram á að mun …

    u-iceland Repository record for „Mannúðarstofnun eða ráðningarskrifstofa?“ Móttaka og val á flóttafólki frá Ungverjalandi 1956 (opens in a new tab)

  6. Menningarkimi í Nexus: Heterótópía nörda í Reykjavík

    Í rannsókninni er rakin saga verslunarinnar Nexus, frá upphafi hennar sem verslunin Goðsögn fram til núverandi staðsetningar í Glæsibæ. Einnig er greint frá fimm stærstu áhugasviðunum sem verslunin býður upp á, ásamt þætti hennar í Midgard ráðstefnunum. Megináhersla er lögð á greiningu á þeim …

    u-iceland Repository record for Menningarkimi í Nexus: Heterótópía nörda í Reykjavík (opens in a new tab)

  7. „Sá kann ekki að stela sem ekki kann að fela.“ Athugun á sauðaþjófnaðarmálum í Eyjafjarðarsýslu 1697-1838

    Viðfangsefni þeirra ritgerðar sem hér fer á eftir er sauðaþjófnaður í Eyjafjarðarsýslu á tímabilinu 1697 – 1838. Ritgerðin byggir á þeim 48 sauðaþjófnaðarmálum sem er að finna í dómabókum sýslumanna frá umræddu tímabili. Þrjú megin þema eru tekin fyrir. Í fyrsta lagi er leitast er við að skýra …

    u-iceland Repository record for „Sá kann ekki að stela sem ekki kann að fela.“ Athugun á sauðaþjófnaðarmálum í Eyjafjarðarsýslu 1697-1838 (opens in a new tab)

  8. „Þá er hrópað hátt um líf og synd og glæp.“ Um rauðsokkur, frjálsar fóstureyðingar og andstöðu

    Rannsókn þessi er unnin eftir aðferðum kynjasagnfræði, þar sem kenningum kynjafræði er fléttað saman við sagnfræðilega rannsóknarvinnu. Í rannsókninni er fjallað um baráttu rauðsokka fyrir frjálsum fóstureyðingum á tímabilinu 1970-1975. Rauðsokkur áttu stóran þátt í að koma endurskoðun …

    u-iceland Repository record for „Þá er hrópað hátt um líf og synd og glæp.“ Um rauðsokkur, frjálsar fóstureyðingar og andstöðu (opens in a new tab)

  9. „Gleymda stríðið“ í hugmyndafræðilegu ljósi: Samanburður á túlkun Morgunblaðsins og Þjóðviljans á Kóreustríðinu 1950–1953

    Umfjallanir Morgunblaðsins og Þjóðviljans á árunum 1950-1953 um Kóreustríðið skoðaðar. Með samanburð við eftirheimildir er séríslensk söguskoðun blaðanna tveggja á stríðinu skoðuð. Ástæður þess, framganga og endilok útskýrð.

    u-iceland Repository record for „Gleymda stríðið“ í hugmyndafræðilegu ljósi: Samanburður á túlkun Morgunblaðsins og Þjóðviljans á Kóreustríðinu 1950–1953 (opens in a new tab)

  10. Áhrif bandaríska setuliðsins á tónlistarlíf Íslendinga 1951-1983

    Í ritgerðinni verður athyglinni beint að áhrifum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli á tónlistarlíf Íslendinga. Fjallað verður um þau áhrif sem Kanaútvarpið og -sjónvarpið höfðu á tónlistarlíf Íslendinga. Rakið verður það tímabil þegar áhrif varnarliðsins hófust árið 1951, þegar bandarískir hermenn …

    u-iceland Repository record for Áhrif bandaríska setuliðsins á tónlistarlíf Íslendinga 1951-1983 (opens in a new tab)

  11. Stríðsárin á Reyðarfirði 1940-1945. Umfang hersetunnar og minningar samfélagsins

    Þessi ritgerð byggist á rannsókn á áhrifum af hersetu bandamanna á Reyðarfirði í síðari heimsstyrjöld, bæði á samfélagið á staðnum og þá kynslóð sem upplifði stríðið. Auk þess er hér lýst þeirri mynd sem síðari kynslóðir Reyðfirðinga hafa gert sér af hersetunni. Fjallað er um aðdraganda hernáms …

    u-iceland Repository record for Stríðsárin á Reyðarfirði 1940-1945. Umfang hersetunnar og minningar samfélagsins (opens in a new tab)

  12. Samtök hernámsandstæðinga

    Ritgerðin fjallar um starfsemi Samtaka hernámsandstæðinga frá stofnun þeirra árið 1960 þangað til þau lögðu upp laupana árið 1970. Markmiðið er að greina stefnumál og félagsgerð samtakanna sem og aðgerðir sem þau stóðu fyrir gegn bandarískri hersetu á Íslandi. Hér bar hæst Keflavíkurgöngur, en …

    u-iceland Repository record for Samtök hernámsandstæðinga (opens in a new tab)

  13. Konungur vor. Hlutverk og vald Noregskonungs á Íslandi á Þjóðveldisöld

    Í þessari ritgerð er fjallað um hlutverk og völd Noregskonunga á Íslandi á Þjóðveldisöld. Dregin er upp sú mynd sem Íslenski skólinn hafði af þessu tímabili og þá sérstaklega af Sturlungaöldini. Síðan er farið út í það hvernig þessar hugmyndir hafa breyst á síðustu áratugum og ekki er lengur litið …

    u-iceland Repository record for Konungur vor. Hlutverk og vald Noregskonungs á Íslandi á Þjóðveldisöld (opens in a new tab)

  14. Flugvallarmálin á níunda áratug 20.aldar. Aðskilnaður almenns farþegaflugs frá starfsemi hersins og upphaf uppbyggingar flugvalla á Íslandi

    Í ritgerðinni er fjallað um svonefnd flugstöðvar- og varaflugvallarmál á Íslandi, en þau voru í deiglunni á 9. áratug 20. aldar. Megináherslan er á innbyrðis tengsl hugmynda um bættar innlendar flugsamgögnur og erlend hernaðarumsvif. Tvö mál verða tekin fyrir. Annars vegar er byggingarsaga …

    u-iceland Repository record for Flugvallarmálin á níunda áratug 20.aldar. Aðskilnaður almenns farþegaflugs frá starfsemi hersins og upphaf uppbyggingar flugvalla á Íslandi (opens in a new tab)

  15. Djass og rokk. Ógn við stöðu Íslands sem siðmenntaðrar evrópskrar þjóðar 1935-1960?

    Langt fram eftir öldum var Norður-Atlantshaf og Ísland óskilgreint svæði í augum Evrópubúa. Landið virtist ekki tilheyra hinum siðmenntaða evrópska heimi þrátt fyrir að þar byggju hvítir, norrænir menn með sögulega tengingu við Evrópu. Íslendingar voru taldir frumstæðir í háttum, siðum og …

    u-iceland Repository record for Djass og rokk. Ógn við stöðu Íslands sem siðmenntaðrar evrópskrar þjóðar 1935-1960? (opens in a new tab)

  16. Viljinn í verki: Saga Styrktarfélags vangefinna 1958-2008

    Ritgerðin skiptist í fjóra meginhluta eftir tímabilum. Í fyrsta hlutanum varpa ég ljósi á það samfélag sem varð til á Íslandi upp úr seinna stríði – mótun nútímaríkisins. Það er athyglisvert að skoða samfélagsþróunina í tengslum við þróun málaflokksins sem Styrktarfélagið tók upp á sína arma. Staða …

    u-iceland Repository record for Viljinn í verki: Saga Styrktarfélags vangefinna 1958-2008 (opens in a new tab)

  17. Siðmenning í voða? upphafning Vesturlanda í verkum Nialls Ferguson

    Ritgerðin fjallar um sagnfræðinginn Niall Ferguson og hugmyndir hans um yfirburði Vesturlanda sem m.a. má finna í bókinni Civilization. The West and the Rest sem kom út í marsmánuði 2011. Litið verður yfir feril Fergusons bæði sem sagnfræðings og sem fræðimanns í sjónvarpi, en þeir sjónvarpsþættir …

    bifrost Repository record for Siðmenning í voða? upphafning Vesturlanda í verkum Nialls Ferguson (opens in a new tab)

  18. Líf til fárra fiska metið. Fátækt fólk og fátækraframfærsla á Austurlandi 1850-1910

    Í þeirri ritgerð sem hér fylgir er leitað svara við ýmsum spurningum sem tengjast hlutverki sveitarfélaga við framfærslu fátækra á síðari hluta 19. aldar. Fjallað er um fátækralöggjöf og þróun hennar rakin allt frá lagabálkum Jónsbókar til umfjöllunar milliþingarnefndar alþingis 1902. Litlar …

    u-iceland Repository record for Líf til fárra fiska metið. Fátækt fólk og fátækraframfærsla á Austurlandi 1850-1910 (opens in a new tab)

  19. Embættismál Íslendinga á 18. öld. Um dönsk áhrif og mikilvægi íslensku

    Á 18. öld voru dönsk áhrif á Íslandi meiri en áður hafði verið í íslensku samfélagi. Svo mikil voru áhrifin að á síðari hluta 18. aldar voru uppi hugmyndir um að taka upp dönsku á Íslandi og segja skilið við íslenskuna. Bjarni Jónsson rektor í Skálholti var m.a. þeirrar skoðunar. Í ritgerðinni er …

    u-iceland Repository record for Embættismál Íslendinga á 18. öld. Um dönsk áhrif og mikilvægi íslensku (opens in a new tab)

  20. Vonskuverk og misgjörningar. Dómsvaldið gegn brotlegum bændum og fjölskyldum þeirra 1792-1808

    Markmið rannsóknarinnar er að draga upp mynd af aðstæðum almúgafólks og tíðaranda á tímabilinu frá 1790 til 1810. Hér eru sagðar sögur fimm bændafjölskyldna sem gerðust sekar um sauðaþjófnað og raktar þær afleiðingar sem afbrotin höfðu í för með sér fyrir fjölskyldurnar og nærsamfélag þeirra. …

    u-iceland Repository record for Vonskuverk og misgjörningar. Dómsvaldið gegn brotlegum bændum og fjölskyldum þeirra 1792-1808 (opens in a new tab)

Page 1 of 2