Back to results

University of Iceland

Samtök hernámsandstæðinga

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um starfsemi Samtaka hernámsandstæðinga frá stofnun þeirra árið 1960 þangað til þau lögðu upp laupana árið 1970. Markmiðið er að greina stefnumál og félagsgerð samtakanna sem og aðgerðir sem þau stóðu fyrir gegn bandarískri hersetu á Íslandi. Hér bar hæst Keflavíkurgöngur, en samtökin skipulögðu einnig viðamikla undirskriftasöfnun til að þrýsta á um brottför Bandaríkjahers sem og önnur mótmæli sem tengdust baráttu þeirra, eins og gegn samningum við Breta í landhelgisdeilunni. Þá verður leitað svara við því hvers vegna samtökin liðu undir lok, en deilur milli stjórnmálafylkinga og þátttaka lykilmanna í flokkspólitísku starfi skiptu þar miklu máli. Þótt áhrif Samtaka hernámsandstæðinga á íslenska utanríkisstefnu hafi verið takmörkuð er líklegt að barátta þeirra og félaga og stjórnmálaflokka sem komu á undan og eftir þeim hafi gert stjórnvöld tregari en ella til að samþykkja hernaðarframkvæmdir Bandaríkjamanna á Íslandi. Fyrir utan að taka upp nýjar aðferðir í baráttunni gegn Bandaríkjaher áttu Samtök hernámsandstæðinga einnig þátt í að leggja grundvöll að stefnu vinstri stjórnar Ólafs Jóhannessonar um brottför Bandaríkjahers á fyrri hluta 8. áratugarins. Í ritgerðinni er stuðst við margvíslegar heimildir. Hér vegur þyngst skjalasafn Samtaka hernámsandstæðinga, en þar koma fram ýmsar upplýsingar varðandi starfsemi samtakanna, eins og helstu aðgerðir sem samtökin stóðu að. Auk fræðirita um hermálið má einnig nefna endurminningabækur manna sem tengdust starfi samtakanna sem og dagblöð og önnur rit um andóf við dvöl Bandaríkjamanna á Íslandi á dögum kalda stríðsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Páll Tryggvason 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29892
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29892

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Páll Tryggvason 1994-. Samtök hernámsandstæðinga. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29892