Back to results

University of Iceland

Orðræða Þjóðviljans um uppreisnina í Ungverjalandi árið 1956

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er fjallað um orðræðu Þjóðviljans um uppreisnina í Ungverjalandi árið 1956. Í kjölfar hernaðaríhlutunar Sovétríkjanna tók Þjóðviljinn upp beina gagnrýni á þetta forysturíki sósíalista í fyrsta skipti frá stofnun blaðsins. Velt er upp spurningunni af hverju það hafi gerst og hver viðbrögðin hafi verið í kjölfarið. Niðurstaðan er sú að þessi gagnrýni í garð Sovétríkjanna hafi skapað blaðinu meiri trúverðugleika í baráttu sinni fyrir brottför Bandaríkjahers auk þess sem aðrir þættir eins og ríkisstjórnarþáttaka sósíalista hafi vegið þungt. Færð eru rök fyrir því að þrátt fyrir þessi vatnaskil þurfi líka að horfa til annarra þátta í umfjöllun blaðsins þegar mikilvægi gagnrýninnar er metin. Stuðst er við orðræðugreiningu (e. Discourse Analysis) til að rýna ekki aðeins í það sem kom fram í umfjöllun Þjóðviljans heldur einnig hverju var sleppt, horft framhjá og þagað um. Komið er inn á umfjöllun annarra blaða til sömu atburða til samanburðar, sem og nálgun Þjóðviljans á Súesdeiluna og innrásina í Tékkóslóvakíu árið 1968. Greiningin sýnir að Þjóðviljinn hafi staðið í áframhaldandi varnarbaráttu fyrir Sovétríkin og beitt þöggun um Ungverjalandsmálið áratugum saman, en á sama tíma treyst í sessi söguskoðun blaðsins um gagnrýnina árið 1956. Þessi tvíræða afstaða hafi komið í veg fyrir raunverulegt uppgjör eða endurmat á uppreisninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Andrés Andrésson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38332
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38332

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Andrés Andrésson 1974-. Orðræða Þjóðviljans um uppreisnina í Ungverjalandi árið 1956. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38332