Back to results

University of Iceland

Landið sem skortir draumasmiði : aðgerðir í menntamálum sem hvatar til kennaranema

Abstract

dc:description.abstract

Vilt þú verða draumasmiður? eru orð sem bárust víða og ef til vill muna margir eftir að hafa tekið eftir þeim í einhverjum af mörgum auglýsingaherferðum sem voru gerðar til þess að laða stúdenta að kennaranámi vegna alvarlegs kennaraskorts sem blasir við íslensku menntakerfi ef aðsókn í kennaranám helst óbreytt. Um leið horfir þjóðfélagið á lágt brautskráningarhlutfall kennaranema og hækkandi starfsaldur starfandi kennara. Sem svar við þessu boðaði Mennta- og menningarmálaráðuneytið aðgerðir sem beinast að kennaranemum og fela meðal annars í sér hvatningastyrk vegna námsframvindu kennaranema og tækifæri til þess að fara í launað starfsnám á lokaári kennaranáms í stað vettvangsnáms. Í þessari rannsókn er rýnt í þessar tvær aðgerðir og leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningunum: „Hvernig tengjast hvatar til kennaranema því hvort þeir ætli sér að ljúka meistaranámi til kennsluréttinda eða ekki?“ og „Hver eru viðhorf kennaranema til launaða starfsnámsins sem hvata til þess að ljúka meistaranámi?“. Notast var við blandaðar rannsóknaraðferðir og var spurningalisti sendur til kennaranema á þriðja og fjórða ári og síðan tekið rýnihópaviðtal við kennaranema á fimmta ári. Rannsóknin er mikilvæg í ljósi þess að aðgerðir í menntamálum voru nýtilkomnar þegar rannsóknin var framkvæmd sem svar við aðsteðjandi vanda og er því ekki komin reynsla á þær. Bakgrunnur rannsóknarinnar liggur í atferlisfræði þar sem skoðað er hvernig innri og ytri áhugahvatir hafa áhrif á kennaranemana. Helstu rannsóknarniðurstöður eru þær að hvatningastyrkurinn vegna námsframvindu í meistaranámi virðist ekki hafa eins mikil áhrif á þátttakendur og búast mætti við en langflestir þátttakendur stefndu á að brautskrást úr meistaranámi óháð aðgerðinni. Þátttakendum þótti þó launaða starfsnámið hafa almennt meiri áhrif en minni á námsframvindu þeirra og að það væri sjálfsagður liður í að fá störf þeirra á vettvangi metin. Þessar niðurstöður gefa til kynna að kennaranemar sæki í námið vegna innri áhugahvata sinna, þó hafi þeir þörf á stuðningi til þess að ná markmiðum sínum og um leið láta drauma sína rætast.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svanhildur Tekla Bryngeirsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39614
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39614

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svanhildur Tekla Bryngeirsdóttir 1996-. Landið sem skortir draumasmiði : aðgerðir í menntamálum sem hvatar til kennaranema. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39614