Back to results

University of Iceland

Réttindi og skyldur foreldra vegna skólagöngu barna sinna : tengjumst – kennarar og foreldrar barna af erlendum uppruna : myndband og fræðsluefni á tengjumst.hi.is

Abstract

dc:description.abstract

Réttindi og skyldur foreldra vegna skólagöngu barna sinna er myndband og vefsíða, eitt af fjórum meistaraverkefnum undir regnhlífinni Tengjumst - kennarar og foreldrar barna af erlendum uppruna. Sameiginlegt markmið okkar var að búa til fræðsluefni fyrir foreldra til þess að styrkja tengsl þeirra og grunnskólanna, í þágu barnanna. Myndböndin eru á arabísku, íslensku, pólsku og spænsku og birt á vefnum tengjumst.hi.is. Vefurinn geymir öll myndböndin ásamt ítarlegum upplýsingum um þátttöku foreldra í grunnskólastarfi á Íslandi. Markmið þessa verkefnis er að fræða foreldra af erlendum uppruna um skólastarf á Íslandi. Fyrir þá er mikilvægt að upplýsingar um skólastarf séu aðgengilegar á fleiri en einu tungumáli. Verkefnið byggir á kenningum Dewey varðandi nemandann sjálfan og þarfir hans. Að uppalendum og kennurum ber að veita nemendum umhverfi þar sem nám getur átt sér stað. Það byggir einnig á rannsóknum á tengslum heimila og skóla, aðalnámskrá grunnskóla, lögum um grunnskóla og barnalögum. Góð tengsl heimilis og skóla er ein af forsendum góðrar skólagöngu. Tryggja skal að nemendur og foreldrar þeirra fái ráðgjöf og aðgang að upplýsingum um grunnskólastarf. Í myndbandinu er farið yfir helstu atriði varðandi skipulag grunnskóla á Íslandi. Rætt er um nauðsynlega upplýsingaveitu milli heimila og skóla og möguleika varðandi samskipti milli heimila og skóla. Einnig er rætt um þátttöku foreldra í námi og leik barna sinna og mikilvægi þess að þeir setji sig inn í þeirra störf. Vinnan við þetta meistaraverkefni jók hæfni mína til að vinna í teymi að heildstæðu verkefni. Sem skólastjóri fékk ég reynslu af að taka á móti hópi, fá leyfi hjá foreldrum og starfsfólki, undirbúa nemendur og starfsfólk fyrir krefjandi dag með myndtökuliði og fólki með nauðsynlega tungumálahæfni. Það hefur verið hvetjandi að vinna að traustu efni sem gefur rétta mynd af skólastarfi á Íslandi og ég hlakka til að deila því með öðrum stjórnendum, kennurum og foreldrum um land allt. Myndbandið Réttindi og skyldur foreldra vegna skólagöngu barna sinna er framleitt í samstarfi okkar fjögurra meistaranema, leiðbeinanda okkar, kvikmyndatökumanna af kennslusviði Háskóla Íslands, þýðenda og vina okkar sem léku í myndböndunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lára Bergljót Jónsdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39546
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39546

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lára Bergljót Jónsdóttir 1973-. Réttindi og skyldur foreldra vegna skólagöngu barna sinna : tengjumst – kennarar og foreldrar barna af erlendum uppruna : myndband og fræðsluefni á tengjumst.hi.is. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39546