Back to results

University of Iceland

Áhrif hreyfingar í kennslustund á vitræna færni og vellíðan 6-12 ára grunnskólanema : fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Vísbendingar eru um að hreyfing hafi margvíslegan ávinning fyrir skólagöngu barna, svo sem betri einbeitingu, aukna vitræna færni og betri námsárangur og kemur sá ávinningur fram bæði hjá stúlkum og drengjum. Þar eru þó ókönnuð áhrif fjölmargra þátta hreyfingar svo sem ákefð, tíma, tíðni og tegundar. Markmið: Leitast verður við að svara spurningunni um hvort að hreyfing í kennslustund hafi áhrif á vitræna færni og vellíðan 6-12 ára grunnskólanema. Í því samhengi verður bæði fjallað um virkar kennslustundir og virk kennsluhlé. Markmiðið er að draga saman þekkingu um áhrif hreyfingar á vitræna færni og vellíðan með tilliti til meginþátta hreyfingar, svo sem ákefðar, tíma, tíðni og tegundar. Aðferðir: Gagnagrunnarnir Google Schoolar og PubMed voru notaðir til að finna vísindagreinar sem fjölluðu um hreyfingu, athygli, minni og vellíðan. Leitin var takmörkuð við rannsóknir á ensku og íslensku og börn á aldrinum 6-12 ára. Niðurstöður: 10-20 mínútna flókin hreyfing af miðlungs ákefð virðist skila bestum árangri fyrir vitræna færni. Eftir 10-20 mínútna hreyfingu af hárri ákefð þarf heilinn tíma (≥20 mínútur) til að ná jafnvægi. Styttri tími (~6 mínútur) hreyfingar af hárri ákefð krefst þess ekki að ákveðinn tími líði þar til áhrifin á vitræna færni sjáist. 15-20 mínútna hreyfing af sjálfvalinni ákefð virðist gefa bestan árangur fyrir vellíðan. Bæði virkar kennslustundir og virk kennsluhlé hafa jákvæð áhrif á vitræna færni og vellíðan. Ályktun: Ákjósanleg leið til að bæta athygli og minni nemenda er annað hvort að innleiða 6 mínútna hreyfingu af hárri ákefð eða hreyfingu af miðlungs ákefð yfir aðeins lengri tíma eða 10-20 mínútur. Æskilegt er að hreyfingin krefjist samhæfingar. Fyrir aukna vellíðan er æskilegt að innleiða 15-20 mínútna daglega hreyfingu af sjálfvalinni ákefð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Ósk Jónsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39538
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39538

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Ósk Jónsdóttir 1991-. Áhrif hreyfingar í kennslustund á vitræna færni og vellíðan 6-12 ára grunnskólanema : fræðileg samantekt. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39538