University of Iceland
Hagur starfsmanna er hagur fyrirtækisins. Starfsmannastefnur og gildi fyrirtækja.
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn voru starfsmannastefnur og gildi 49 fyrirtækja skoðuð. Fyrirtækin voru flokkuð í 7 flokka eftir atvinnugreinum og voru starfsmannastefnurnar innihaldsgreindar og gildi fyrirtækjanna talin. Markmiðið rannsóknarinnar var að finna helstu lykilþætti í starfsmannastefnum hjá fyrirtækjum á íslenskum vinnumarkaði og skoða hvort munur sé á milli fyrirtækja í mismunandi atvinnugreinum. Gildin voru talin og fundin voru algengustu gildin hjá fyrirtækjunum og einnig kannað hvort það var munur á gildum milli atvinnugreina. Í þessari rannsókn er notast við innihaldsgreiningu þar sem áhersla er lögð á innihald textans, talin voru orð, stafir og setningar. Notast var við hentugleikaúrtak þar sem fyrirtækin voru valin eftir hentugleika og aðgengi að starfsmannastefnum og gildum haft að leiðarljósi. Settar voru fram eftirfarandi rannsóknarspurningar: Hverjir eru helstu lykilþættir í starfsmannastefnum hjá fyrirtækjum á íslenskum vinnumarkaði ? Er munur á milli starfsmannastefna hjá fyrirtækjum í mismunandi atvinnugreinum ? Hver eru algengustu gildin hjá íslenskum fyrirtækjum ? Er munur á völdum gildum milli atvinnugreina ? Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að helstu lykilþættir í starfsmannastefnum hjá fyrirtækjunum er sí- og endurmenntun (starfsþróun) starfsmanna, jafnréttismál og ráðningar starfsmanna. Algengasta gildið hjá fyrirtækjunum var áreiðanleiki og kom það oftast fyrir. Niðurstöður rannsóknarinnar sína einnig að starfsmannastefnur og gildi innan fyrirtækja og skipulagsheilda eru mikilvægur þáttur í þeirri þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár í mannauðsmálum að auka virði hvers starfsmanns og skapa jafnvægi milli vinnu og heimilis.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kolbrún Halla Ingólfsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37314
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37314