Back to results

University of Iceland

Kennarinn sem námskrársmiður : námskrárfræðileg nálgun á samfélagsgreinakennslu

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er eigindleg viðtalsrannsókn byggð á hálf-opnum viðtölum við samfélagsgreinakennara á unglingastigi. Rannsóknarspurningin er: Hvað hefur áhrif á samfélagsfræðikennara þegar þeir velja námsefni og kennsluaðferðir? Fræðilegt baksvið ritgerðarinnar er námskrárfræði. Þátttakendur í rannsókninni voru sex samfélagsgreinakennarar á höfuðborgarsvæðinu. Áttu þeir það sameiginlegt að hafa kennt samfélagsgreinar á unglingastigi skólaárið 2019-2020. Voru þeir flestir samfélagsgreinamenntaðir og með mikla starfsreynslu sem kennarar. Einnig voru rýndar námskrár skólanna sem kennararnir starfa við og samfélagsgreinakafli aðalnámskrár 2013. Niðurstöðurnar eru í samræmi við þróun menntunar á Íslandi frá hefðbundna skólanum (e. traditional education) yfir í framsækna skólann (e. progressive education). Aðalnámskráin og samfélagsgreinakafli hennar fylgja nemendamiðaðri og samfélagsmiðaðri námskrárstefnu. Samfélagsgreinakennararnir fundu sig í öllum fjórum stefnunum í flokkunarkerfi Michael Schiros. Þær eru nemendamiðuð námskrárstefna, samfélagsmiðuð námskrárstefna, umbótamiðuð námskrárstefna og fræðigreinamiðuð námskrárstefna. Aðhylltust þeir þó mest nemendamiðaða námskrárstefnu. Samband var á milli hugmyndafræði kennaranna og áherslna þeirra í kennslu. Áhugi nemanda, reynsla kennaranna í starfi og hefðir innan skólanna höfðu mikið að segja um hvernig þeir höguðu kennslu sinni. Oft höfðu skólanámskrár grunnskóla lítið fram að færa umfram Aðalnámskrá grunnskóla. Má því álykta að „macro“, „micro“ og „nano“ þættir hafi umtalsverð áhrif á framkvæmd samfélagsgreinanámskrárinnar en að „meso“ þættir í samfélagskerfinu hafi lítil áhrif. Af rannsókninni má draga þá ályktun að samfélagsgreinakennarar hafi mikið frelsi í starfi og því sé fagmennska þeirra og menntun mikilvæg. Einnig að kenningin um kennarann sem námskrársmið eigi vel við samfélagsgreinakennslu á unglingastigi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Hallgrímsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37195
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37195

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Hallgrímsson 1985-. Kennarinn sem námskrársmiður : námskrárfræðileg nálgun á samfélagsgreinakennslu. 2020. http://hdl.handle.net/1946/37195