University of Iceland
„Það segir nú bara svo mikið og... ég held það segi nú bara allt með það hvernig áframhaldið verður“ Viðhorf og upplifun starfsmanna á móttöku nýliða í ferðaþjónustufyrirtæki
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um móttöku nýrra starfsmanna. Markmið rannsóknarinnar er að kanna upplifun og viðhorf undirmanna í ferðaþjónustufyrirtæki á því hvernig tekið er á móti þeim í nýju starfi. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem viðmælendur voru starfsmenn ferðaþjónustufyrirtækis. Viðmælendur voru sjö talsins og eiga það allir sameiginlegt að vera undirmenn í fyrirtækinu. Fyrirtækið sem unnið var með og kannað í rannsókninni er rótgróið meðal stórt ferðaþjónustufyrirtæki. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að upplifun viðmælanda af móttökuferlinu er jákvæð í flestum tilfellum en mætti vera betri og í fastari skorðum. Flestir viðmælendur voru ánægðir með þær móttökur sem þeir fengu frá yfirmönnum sínum og samstarfsfélögum en munur er á frásögnum þeirra hvernig móttökur þeir fengu. Viðmælendur voru flestir sammála um að þörf er á verulegum úrbótum þegar kemur að þjálfun og fræðslu nýliða. Munur var á milli viðmælenda hvernig þeir lýstu þjálfun sinni og því hversu óánægðir þeir voru með þá þjálfun sem þeir hlutu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þjálfunin sem nýir starfsmenn hljóta sé ómarkviss og misjöfn eftir því hvaða starfsmaður tekur að sér að þjálfa nýliðann. Að lokum sýndu niðurstöður að fyrirtækið er með of marga stjórnendur og því má álykta að starfsfólk fái ekki nægilega skýr skilaboð um hvernig hlutirnir eiga að vera og jafnvel misvísandi skilaboð. Mannauðurinn er mikilvæg auðlind og hann ber að vernda. Því er mikilvægt að vel sé staðið að móttöku og þjálfun nýliða. Niðurstöður gefa vísbendingu um að nýir starfsmenn þurfi hver og einn að vera að finna upp hjólið og reka sig á í starfi og læra þannig meira af sjálfum sér út frá mistökum sem þeir gerðu og búa til sína eigin verkferla í stað þess að fylgja því sem á að gera svo að allir vinni að sömu markmiðum og í takt við gildi fyrirtækisins. Hugtök: Mannauðsstjórnun, móttaka nýliða, nýliðaþjálfun, nýliðafræðsla
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Maríanna Jónsdóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/37030
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/37030