Back to results

University of Iceland

"Góður hópur getur gert allt" : viðhorf leikskólastarfsfólks til gæða í leikskólastarfi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf leikskólastarfsfólks til gæða í leikskólastarfi, helstu þátta sem hafa áhrif á gæði leikskólastarfs og þeirra áhrifa sem gott leikskólastarf hefur á börn og samfélagið í heild. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir til að afla gagna og var það gert með því að taka hálf opin viðtöl við fjóra leiðbeinendur og fjóra leikskólakennara. Gæði í leikskólastarfi eru talin geta haft mikil áhrif á líf barna og tækifæri þeirra til áframhaldandi náms, auk þess að geta stuðlað að auknum jöfnuði í viðkomandi samfélagi og tryggt að atvinnuhjól þess haldist gangandi. Samkvæmt rannsóknum eru helstu áhrifaþættir þegar kemur að gæðum í leikskólastarfi menntun starfsfólks, fjöldi barna á kennara, stærð húsnæðis og skipulag, námskrá og mat á starfi, en af þessum þáttum skiptir menntun starfsfólks mestu máli. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að það sem skiptir mestu máli til að tryggja gæði í leikskólastarfi er starfsmannahópurinn, menntun hans og samsetning. Það sem hefur helst áhrif á gæði leikskólastarfs er starfsandinn í hverjum leikskóla og fjárveitingar og ákvarðanir stjórnvalda sem snúa að leikskólamálum. Áhrif góðs leikskólastarfs á börn og samfélagið voru að mati viðmælenda gríðarlega mikil, annars vegar í því formi að veita börnum góðan grunn og betri tækifæri til frekari náms og hins vegar sem grunnstoð í samfélaginu sem tryggir foreldrum tækifæri til að stunda vinnu og stuðli þannig að því að hjól atvinnulífsins snúist.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svanhvít Erla Traustadóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36847
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36847

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svanhvít Erla Traustadóttir 1986-. "Góður hópur getur gert allt" : viðhorf leikskólastarfsfólks til gæða í leikskólastarfi. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36847