Back to results

University of Iceland

Áhrif stýrðrar kennslu og fimiþjálfunar á lestrarfærni 12 ára stúlku með lestrarörðugleika

Abstract

dc:description.abstract

Lestur er afar mikilvæg færni sem snertir margt í lífinu, því er mikilvægt að börn nái tökum á þeirri færni. Stýrð kennsla Engelmanns (e. Direct Instruction) er raunprófuð kennsluaðferð sem hefur reynst afar árangursrík til að auka færni og frammistöðu í lestri. Í þeirri kennsluaðferð fylgir kennari handriti þar sem eru skýr fyrirmæli um skipulag kennslu og fyrirlögn verkefna. Áður en haldið er áfram í ný verkefni þarf nemandi að hafa náð fullri færni í fyrri verkefnum. Mikillar virkni er krafist af nemanda í stýrðri kennslu, því á kennari að veita tafarlausa endurgjöf á frammistöðu hans í kennslustundum. Fimiþjálfun (e. precision teaching) er raunprófuð kennsluaðferð og mælitæki sem hefur það markmið að auka fimi nemanda, svo svörun hans sé hröð, nákvæm og fyrirhafnarlaus. Það hefur reynst afar áhrifaríkt þegar fimiþjálfun er notuð samhliða stýrðri kennslu. Markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif stýrðrar kennslu og fimiþjálfunar á lestrarfærni 12 ára stúlku með sértæka námsörðugleika. Niðurstöður sýndu fram á aukna færni hjá þátttakanda á flestum sviðum rannsóknar, einnig voru miklar framfarir í lesfimisprófum Menntamálastofnunar, sem gaf til kynna klíníska marktækt í rannsókninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Silja Dís Guðjónsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35071
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35071

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Silja Dís Guðjónsdóttir 1995-. Áhrif stýrðrar kennslu og fimiþjálfunar á lestrarfærni 12 ára stúlku með lestrarörðugleika. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35071