Back to results

University of Iceland

Minecraft í stærðfræðikennslu á yngsta stigi grunnskóla

Abstract

dc:description.abstract

Þetta lokaverkefni til meistaragráðu frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands fólst í rannsókn sem var sett upp með því markmiði að skoða hvort þátttaka í tölvuleiknum Minecraft auðveldi ungum nemendum í grunnskóla að læra stærðfræðihugtök. Verkefnið var eitt af fleiri íslenskum rannsóknartilvikum í evrópska rannsóknar- og þróunarverkefninu MakEY eða Makerspaces in the early years: Enhancing digital literacy and creatitvity frá árunum 2016–2019 en á meðal meginmarkmiða þess er að efla rannsóknir og nýsköpun á sviði stafræns læsis og beina sjónum að sköpunarmætti barna (MakEY, 2019). Rannsóknin var unnin í samstarfi við Skúlínu Hlíf Kjartansdóttur og Gísla Þorsteinsson háskólakennara á Menntavísindasviði og afraksturinn er fræðileg grein um rannsóknina skrifuð í samvinnu höfundar og þeirra tveggja. Greinin ásamt meðfylgjandi greinargerð er meistaraverkefni höfundar. Þátttakendur í rannsókninni voru höfundur sjálfur í hlutverki sínu sem kennari og tíu nemendur 2. bekkjar Grunnskólans í Stykkishólmi. Rannsóknarvettvangur var skólastofa í Stykkishólmi ásamt sýndarveruleika tölvuleiksins Minecraft. Nemendur glímdu við leikinn í iPad-spjaldtölvum. Í greinargerðinni lýsir höfundur kennslunni, gagnaöflun, úrvinnslu gagna og helstu niðurstöðum. Þar er horft til nokkurra rannsókna um leikjamiðað nám og tengir höfundur þær við sína reynslu af Minecraft í námi og kennslu. Höfundur lýsir jafnframt spjaldtölvuvæðingu í Grunnskólanum í Stykkishólmi og fjallar um Minecraft sem hagnýtt verkfæri í kennslu. Einnig er fjallað um þær breytingar á hlutverki kennarans sem verða þegar sýndarveruleiki Minecraft er notaður í kennslu, hvaða hindranir þarf að yfirstíga og þá ókosti sem kunna að fylgja því að nota sýndarumhverfi í kennslu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu bæði í ljós námslegan ávinning og annmarka. Niðurstöðurnar sýna að nemendur voru áhugasamir og notuðu sköpunarrýmið í sýndarveruleikanum á skapandi hátt sem hjálpaði þeim að leysa þær þrautir sem lagðar voru fyrir þá og ná þannig markmiðum námsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnlaugur Smárason 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34972
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34972

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnlaugur Smárason 1983-. Minecraft í stærðfræðikennslu á yngsta stigi grunnskóla. 2020. http://hdl.handle.net/1946/34972