Back to results

University of Iceland

Við eigum að vera dálítið þakklát fyrir að þau vilji koma til okkar í vinnu

Abstract

dc:description.abstract

Samfélagsbreytingar síðustu ára kalla á nýjar áherslur innan fyrirtækja og einnig nýja stjórnunarhætti. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig stjórnendur hugsa sér að mæta þörfum nýrrar kynslóðar, sem oft er nefnd kynslóð Y, á vinnumarkaði í náinni framtíð. Lagt var upp með spurninguna: Hvernig birtist viðhorf og sýn stjórnenda til kynslóðar Y? Til að svara spurningunni voru tekin hálfopin viðtöl við tíu ólíka stjórnendur um efnið. Við greiningu á viðtölunum var beitt hefðbundnum eigindlegum greiningaraðferðum og leitað að þemum til að lýsa hugmyndum viðmælendanna. Niðurstöðurnar sýna, að þessir stjórnendur eru allir sammála um, að koma kynslóðar Y á vinnumarkaðinn krefjist endurskoðunar fyrri starfs- og stjórnunarhátta. Þeir telja, að með Y kynslóðinni muni koma ný gildi og nýtt vinnusiðferði birtast á vinnumarkaðnum. Eins leiddu niðurstöðurnar í ljós að stjórnendurnir telja kynslóð Y ekki eins trygga og holla fyrirtækjum og fyrri kynslóðir hafa verið. Kynslóð Y setur vinnuna ekki í forgang, heldur persónuleg málefni ólíkt eldri kynslóðum. Eitt af því, sem ýtir undir breyttar áherslur, er hvernig fjölskyldumynstur hefur breyst og telja stjórnendurnir að lagasetning um feðraorlof vegi þungt, ásamt auknum réttindum beggja foreldra til þess að annast ung börn sín og taka virkan þátt í heimilisstörfum. Stjórnendurnir eru jafnframt sammála um að kynslóð Y búi yfir minni sveigjanleika en eldri kynslóðir. Við þessu þurfa vinnuveitendur að bregðast með auknum sveigjanleika. Helstu áherslurnar eru ýmis fríðindi, eins og sveigjanlegur vinnutími. Helstu kosti kynslóðar Y telja stjórnendurnir vera dugnað, metnað og löngun til þess að gera vel. Auk þess eru þeir allir sammála um að tæknikunnátta kynslóðar Y sé góð, sem gerir hana að eftirsóttu vinnuafli. Kynslóð Y er að þeirra mati vel menntuð en hefur haft fá tækifæri til að afla sér reynslu á vettvangi. Þeir telja það fyrirtækjum til framdráttar að gefa henni tækifæri til að afla sér starfsreynslu og að samstarf kynslóðanna muni efla starfsemi fyrirtækja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Helga Magnúsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/3451
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/3451

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Helga Magnúsdóttir 1974-. Við eigum að vera dálítið þakklát fyrir að þau vilji koma til okkar í vinnu. 2009. http://hdl.handle.net/1946/3451