Back to results

University of Iceland

„Málið er orðið fátækara af orðum“ : áhrif snjallsímanotkunar á málnotkun og orðaforða unglinga

Abstract

dc:description.abstract

Notkun snjallsíma hefur aukist mjög í íslensku samfélagi síðustu ár og eru börn sífellt yngri þegar þau eignast slík tæki. Allflestir nemendur á unglingastigi grunnskólans eiga snjallsíma og virðist notkun tækjanna oft og tíðum ótakmörkuð og því sem næst hömlulaus. Gerð var eigindleg rannsókn með það að markmiði að skoða hvort snjallsímanotkun hefði haft áhrif á málnotkun nemenda á unglingastigi grunnskólans að mati kennara, foreldra og nemendanna sjálfra. Einnig var skoðað hvort fyrrgreindum hópum þætti snjallsímanotkunin hafa haft áhrif á seiglu og þrautseigju í námi sem og á félagsleg samskipti unglinga og þá hvort hópunum þætti ástæða til að setja samræmdar reglur um snjallsímanotkun í unglingadeildum grunnskólans. Fimm kennarar tóku þátt í rannsókninni, fimm nemendur á unglingastigi og þrír foreldrar. Allir kennararnir höfðu kennt í að minnsta kosti tíu ár og á því tímabili komið að íslenskukennslu á einn eða annan hátt. Tekin voru einstaklingsviðtöl við alla kennarana. Nemendurnir fimm sem tóku þátt í rannsókninni voru allir í 10. bekk þegar rætt var við þá. Tekið var eitt hópviðtal við alla nemendurna saman og spunnust úr því áhugaverðar umræður. Tekin voru einstaklingsviðtöl við þrjá foreldra sem allir áttu börn í unglingadeild fyrir tíma snjallsímans og svo eftir innreið snjallsímans til að kanna hvort þeir hefðu fundið mun á málnotkun barna þeirra á unglingsárum. Þau viðtöl voru þó ekki notuð í niðurstöðum því allir foreldar áttu erfitt með að meta hvort munur væri á málnotkun barna þeirra þar sem um var að ræða svo ólíka einstaklinga og ólíkt samfélagslegt net í kringum þá. Viðtalshóparnir þrír; hópur nemenda, hópur kennara og hópur foreldra, fengu hver sinn viðtalsramma og sneru spurningar að snjallsímanotkun unglinga og áhrifum hennar á málnotkun þeirra sem og á félagsleg samskipti og á seiglu og þrautseigju í námi. Að lokum voru þátttakendur spurðir hvort þeir teldu þörf á samræmdum reglum um snjallsímanotkun í unglingadeildum grunnskólans og þá hvernig standa ætti að slíku. Meginniðurstöður rannsóknar bentu til þess að aukin snjallsímanotkun síðustu ára hefði haft talsverð og neikvæð áhrif á málnotkun nemenda á unglingastigi, á seiglu þeirra og þrautseigju í námi sem og félagsleg samskipti þeirra. Þetta styður við fleiri rannsóknir á áhrifum snjallsímanotkunar á þessa þætti sem nefndar verða í fræðilegum kafla í þessu verki. Niðurstöðurnar gefa jafnframt til kynna að mikilvægt sé að huga að snjallsímanotkun unglinga nú til dags og þeirra áhrifa sem notkunin hefur á nám unglinga og félagslega þáttinn og jafnfram að þörf sé á einhvers konar reglusetningu hvað varðar notkun snjallsíma í skólastarfi á unglingastigi. Þó sé einnig mikilvægt að gleyma ekki þeim tækifærum sem snjalltækin bjóða upp á í skólastarfi en notkuninni þurfi að stýra vandlega ef vel á að takast til.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elín Heiður Gunnarsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34084
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34084

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elín Heiður Gunnarsdóttir 1980-. „Málið er orðið fátækara af orðum“ : áhrif snjallsímanotkunar á málnotkun og orðaforða unglinga. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34084