University of Iceland
Ég lærði svo mikið án þess að taka eftir því : starfendarannsókn á innleiðingu samvirks náms í kennslu
Abstract
dc:description.abstractRannsókn mín er starfendarannsókn (e. action research) þar sem ég leitast við að varpa ljósi á mína eigin kennsluhætti. Áhersla er lögð á að skoða þær hindranir sem ég hef staðið frammi fyrir á fyrsta kennsluári mínu og hvort ég geti með hjálp nýrrar kennslunálgunar yfirstigið þessar hindranir. Meginmarkmið starfendarannsóknarinnar er að athuga hvort kennslunálgunin samvirkt nám sé leið til þess að auka virkni nemenda í notkun markmálsins í kennslustund. Rannsóknarspurningarnar sem leitast verður við að svara eru eftirfarandi: Hvernig er hægt að virkja nemendur til að tala og nota markmálið í kennslustofunni í dönskukennslu? Hvernig er hægt að koma til móts við nemendur með mismunandi þarfir í dönskukennslu? Niðurstöðurnar byggja á dagbókarskrifum mínum og nemenda minna ásamt opnum viðtölum sem ég átti við nemendur meðan á rannsóknartímanum stóð. Niðurstöður leiddu í ljós að kennslunálgunin samvirkt nám hefur áhrif á virkni nemenda í notkun markmálsins í dönskukennslu. Notkun markmálsins var af skornum skammti fyrir rannsóknartímann og einkenndist þá aðallega af einstaka orðum en ekki heilum setningum. Þegar rannsóknartíma lauk var markmálið orðið helsti samskiptamáti í kennslustundum, og orðaforði hafði aukist. Einnig var skoðað hvort hægt væri að koma til móts við mismunandi þarfir nemenda í dönskukennslu. Samvirkt nám byggist á hópavinnu þar sem allir nemendur innan hópsins hafa sitt hlutverk. Niðurstöður leiddu í ljós að hægt er að koma til móts við mismunandi þarfir nemenda, en það getur þó reynst erfitt í einhverjum verkefnum. Með samvirku námi er verið að nálgast námsefnið í gegnum leiki og hreyfingu. Sérstaða samvirks náms byggist einna helst á því að með notkun kennslunálgunarinnar minnkar námslegt bil milli nemenda og allur nemendahópurinn fylgist að í verkefnum. Niðurstöður sýndu einnig fram á að með innleiðingu samvirks náms breyttist skólabragur til muna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Björnsdóttir Jensen 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34080
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34080