University of Iceland
Svörtu sauðirnir í skólakerfinu á Íslandi. Staða grunnskólanemenda með námsörðugleika og hvað má bæta
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar var að öðlast betri innsýn í stöðu nemenda með námsörðugleika í grunnskólum landsins, ásamt því að skoða hvaða áhrif þeir geta haft á nám og líðan nemenda. Fjallað er um skilgreiningar á námsörðugleikum og hvernig þeir eru greindir. Einnig er gerð grein fyrir mikilvægi snemmtækrar íhlutunar þegar kemur að nemendum með námsörðugleika. Farið er yfir núgildandi lög og reglugerðir um grunnskóla auk þess sem fjallað er um núgildandi skólastefnu um skóla án aðgreiningar. Að því loknu er umfjöllun um nokkrar rannsóknir sem snúa að stöðu nemenda með námsörðugleika. Í lok ritgerðar er fjallað um áherslur í finnska skólakerfinu og tillögur settar fram um hvernig hægt væri að nýta þær á Íslandi til hagsbóta fyrir nemendur. Rannsóknarspurningar ritgerðarinnar eru eftirfarandi: Hver er staða íslenskra grunnskólanemenda með námsörðugleika? Hvað má bæta innan skóla til að koma til móts við þarfir nemenda? Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að skólakerfið nái ekki að sinna fjölbreyttum þörfum nemenda. Niðurstöður sýna jafnframt að mikil áhersla er lögð á að sjúkdómsgreina einstaklinga með námsörðugleika. Niðurstöðurnar sýna að mikilvægt er að endurskoða menntakerfið og grípa til róttækari aðgerða til að mæta þörfum nemenda með námsörðugleika.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steinunn Edda Fernández 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32846
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32846