University of Iceland
„Það sprettur alltaf eitthvað meira, þú sáir einu fræi og ...“ : starfendarannsókn á útisvæði leikskóla
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að þróast í starfi, nýta eigin styrkleika og hafa áhrif á menningu og samstarfsfólk á eigin vinnustað hvað varðar útiveru leikskólabarna. Leikskólalóðin er hluti af námsumhverfi ungra barna og það er mikilvægt að rannsaka hvernig lóðin er nýtt í leikskólastarfinu. Ég lagði áherslu á að taka ábyrgð sem fagmaður í leikskólanum og leiðtogi meðal starfsfólks með því að fá samstarfsfólk með mér í lið við að nýta námstækifærin utandyra eftir fremsta megni og stuðla að lærdómssamfélagi þar sem starfsfólk lærði hvert af öðru á útisvæðinu. Rannsóknin var starfendarannsókn þar sem notaðar voru eigindlegar aðferðir við gagnaöflun. Gögnin sem aflað var í rannsókninni fólust í skrifum rannsóknardagbókar, fundargerðum, upptökum af umræðum hópa sem og í öðrum gögnum skólans, svo sem ljósmyndum, sjálfsmatsskýrslu og námsskrá. Samstarfsfólk mitt tók þátt í rannsókninni með þátttöku sinni í umræðuhópum en einnig svaraði það viðhorfskönnun um verkefnið. Helstu niðurstöður eru að starfendarannsóknin hafði áhrif á bæði menningu og lærdómssamfélag leikskólans. Starfsfólk lærði hvert af öðru með því að vinna saman á útisvæði og deila hugmyndum og á þann hátt styrktist lærdómssamfélagið í leikskólanum. Menningin breyttist með aukinni reynslu starfsfólks og barna af fjölbreyttum verkefnum utandyra. Helstu þættir sem höfðu áhrif á menninguna og lærdómssamfélagið voru samvinna starfsfólks, sameiginleg sýn á leik og nám barna á útisvæði og þátttaka í skólasamfélaginu með því að deila hugmyndum og verkefnum og taka þátt í umræðu. Í rannsóknarferlinu efldist ég sem fagmaður og öðlaðist aukinn skilning á flóknu starfsumhverfi leikskólans. Hagnýtt gildi verkefnisins er fyrst og fremst fyrir starfið á eigin vinnustað. Með auknum skilningi á starfsháttum og samræðum starfsfólks um framtíðarsýn og vinnubrögð aukast gæði námsins og starfsánægja kennara. Starfendarannsókn sem þessi hentar vel til að stuðla að skólaþróun og skapa jarðveg fyrir menningu sem styður við samstarf og verkefnið er því innlegg í umræðu um leikskólann sem lærdómssamfélag fyrir alla, börn og starfsfólk.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Harpa Kolbeinsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32432
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32432