University of Iceland
Skipting og sameining fasteigna utan skipulagðra þéttbýlissvæða
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni var fjallað um ferlið sem ráðast þarf í þegar fyrirhugað er að skipta fasteignum eða sameina þær, með áherslu á framkvæmdina utan skipulagðra þéttbýlissvæða. Meginmarkmið ritgerðarinnar var að lýsa gildandi rétti en einnig var lagt upp með það að skoða hvað mætti betur fara í ferlinu. Í upphafi var fjallað almennt um fasteignir og sérstök áhersla lögð á hugtakið fasteign. Þá var vikið að formlegum skilyrðum fyrir stofnun fasteigna á grundvelli laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Einnig var fjallað um álitamál varðandi eignaraðild að útskiptum og sameinuðum fasteignum sem og stöðu óbeinna eignaréttinda. Því næst var fjallað um í hvaða farveg skipting og sameining fasteigna fer hjá stjórnvöldum og voru skipulagslög nr. 123/2010 og jarðalög nr. 81/2004 skoðuð í því sambandi. Að svo búnu var fjallað um skipti fasteignar í sérstakri sameign. Engar almennar reglur er að finna í íslenskum rétti um skipti eigna í sérstakri sameign en í framkvæmd hefur verið stuðst við 20. kapitula kaupabálks Jónsbókar. Einnig var fjallað um sérreglur sem finna má í landskiptalögum nr. 46/1941 sem taka á skiptum á óskiptu sameignarlandi tveggja eða fleiri jarða. Því næst var vikið að skiptingu og sameiningu fasteigna í fjöleignarhúsum á grundvelli laga um fjöleignarhús nr. 26/1994. Að lokum voru niðurstöður dregnar saman og tillögur settar fram um hvernig mætti bæta og einfalda ferlið.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Hrönn Karlsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31694
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31694