University of Iceland
Námsbók í sögu ætluð unglingum með námserfiðleika : Ísland á 20. öld
Abstract
dc:description.abstractÞetta verkefni er sögukennslubók sem ætluð er unglingum með námserfiðleika. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar er fræðileg umfjöllun um ritun slíkrar kennslubókar og hins vegar er það kennslubókin sjálf. Í fræðilegu umfjölluninni er fjallað um það hvernig á að hanna kennslubók til þess að hún komi betur til móts við þarfir nemenda sem glíma við námserfiðleika. Þar er einnig fjallað um innihald og efnistök sögukennslubóka. Að lokum fylgir með texti kennslubókarinnar sjálfrar sem er skrifaður er í samræmi við umfjöllunina í fræðilega hluta ritgerðarinnar. Mikill skortur er á námsefni fyrir nemendur sem glíma við námserfiðleika. Einstaklingsmiðað nám hefur verið tekið upp víða en þó vantar enn þá námsefni sem styður við það. Þó að þessi kennslubók sé hönnuð fyrir nemendur með námserfiðleika þá er hún byggð á aðferðum sem aðstoða alla nemendur. Þær aðferðir sem notaðar eru til þess að koma til móts við þarfir nemenda með námserfiðleika gagnast einnig öðrum nemendum. Helstu áherslurnar í kennslubókinni eru í uppbyggingu textans. Textinn er hannaður til þess að vera auðlæsari fyrir nemendur sem eiga erfitt með lestur og til að ná til nemenda svo þeir tengist honum betur og skilji hann betur. Í kennslubókinni eru engin ártöl og engin mannanöfn. Sagan sem er sögð er aðallega um íslenskt samfélag og atburði á 20. öld.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristján Hildibrandsson 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31623
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31623