Back to results

University of Iceland

Samanburður á agastefnum : tengsl við skólamenningu.

Abstract

dc:description.abstract

Agakerfi á borð við „Positive behavior support (PBS)“ og Uppeldi til ábyrgðar hafa verið notuð víða í grunnskólum á Íslandi í um áratug. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á góðan árangur þeirra við agastjórnun. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvort munur kæmi fram á þáttum sem metnir eru í Skólapúlsinum í þeim skólum sem höfðu heildstætt agakerfi og þeim sem höfðu eigin agastefnu. Í þessari rannsókn voru skoðuð viðhorf 11.432 nemenda í 6.-10. bekk í 66 skólum. Efnisþættirnir voru vellíðan, einelti, samsömun við nemendahópinn, samband nemenda við kennara, agi í tímum og virk þátttaka í tímum. Vegna umfangs gagnanna kom ekki á óvart að marktækur munur var á milli skóla eftir agastefnum í nokkrum efnisþáttum. Stærð áhrifanna var eigi að síður ekki mikil og ekki kom fram mikill munur eftir agastefnum í fimm af sex efnisþáttum. Athyglisvert er að lítill munur fannst á aga í tímum eftir agastefnum. Gögnin gáfu þó ekki næga ástæðu til að álykta að kerfin beri ekki árangur. Í ritgerðinni er leitast við að útskýra hvers vegna meiri munur kom ekki fram á milli agakerfa. Fyrst má nefna að hér er aðeins um eina mælingu að ræða, skólunum var ekki fylgt eftir til að fylgjast með breytingum við tilkomu kerfanna. Því má vera að sumir skólanna hafi einmitt tekið upp heildstætt agakerfi til að bæta ofangreinda þætti og náð þeim árangri að komast upp í meðaltal annarra skóla. Þá getur verið að skólar sem ekki höfðu heildstætt agakerfi hafi unnið það öflugt starf að þeir hafi verið með jafn góðan árangur og þeir sem styðjast við heildstætt agakerfi. Á hinn bóginn getur einnig verið að þeir skólar sem sögðust vinna eftir tilteknu agakerfi hafi ekki gert það nema að takmörkuðu leyti en annað hvort ekki áttað sig á því eða ekki látið það í ljós þegar agakerfin voru kortlögð í upphafi rannsóknarinnar. Fleiri þættir eru teknir til skoðunar í umræðukafla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Írena Guðnadóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26037
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26037

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Írena Guðnadóttir 1983-. Samanburður á agastefnum : tengsl við skólamenningu.. 2016. http://hdl.handle.net/1946/26037