Back to results

University of Iceland

Svefn og svefntruflanir hjá börnum á aldrinum 6-12 ára: Fræðileg samantekt

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Algengt er að börn á skólaaldri eigi erfitt með að sofna á kvöldin, vakni á nóttunni og eigi erfitt með að sofna aftur. Þó að vandi sem þessi geti haft neikvæð áhrif á daglegt líf hjá börnum hafa fáar rannsóknir verið birtar um svefn, svefnvanda og meðferðir hjá börnum á þessum aldri. Tilgangur: Að framkvæma fræðilega samantekt á svefni og svefntruflunum hjá skólabörnum á aldrinum 6-12 ára. Aðferðir: Heimildaleit fór fram í gagnasöfnunum PubMed, Mesh, Medline og PsycINFO. Leitað var að rannsóknum um svefnvandamál, algengi þeirra, svefnvandamál sem tengdust þroskaröskunum, líkamlegum- og/eða andlegum sjúkdómum skólabarna og úrræðum við svefnvanda. Leitirnar voru afmarkaðar við börn á aldrinum 4-18 ára. Niðurstöður: Ekki hafa verið birtar margar rannsóknir á svefni og svefnvandamálum 6-12 ára skólabarna. Helstu einkenni hjá barni sem á við svefnvandamál að stríða er dagsyfja, einbeitingaskortur sem getur meðal annars haft áhrif á frammistöðu í skólanum. Sérstaklega er þörf á að fylgjast með börnum sem eru með líkamleg veikindi eða þroskatengd vandamál en samkvæmt rannsóknum virðast þau vera í meiri hættu á að sofa illa. Algengasta meðferðin sem notuð er hér á landi handa börnum með svefnvanda er Hugræn atferlismeðferð (HAM). Ályktanir: Rannsaka þarf betur svefn og svefnvanda 6-12 ára barna, sérstaklega hjá þeim börnum sem eru með þroskaraskanir eða aðrar raskanir hvort sem þær eru andlegar eða líkamlegar. Auka þarf fræðslu fyrir hjúkrunarfræðinga og foreldrum/forráðamönum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Anna Lucie Bjarnadóttir 1989-
  • Þórunn Helgadóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/24760
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/24760

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Lucie Bjarnadóttir 1989-; Þórunn Helgadóttir 1985-. Svefn og svefntruflanir hjá börnum á aldrinum 6-12 ára: Fræðileg samantekt. 2016. http://hdl.handle.net/1946/24760