Back to results

University of Iceland

Hvernig bjargar maður heiminum? Skapandi kennsluefni í umhverfis- og auðlindafræði

Abstract

dc:description.abstract

Þetta M.Ed. verkefni er kennsluefni í umhverfis- og auðlindafræði fyrir framhaldsskólanemendur sem er ætlað að ýta undir skapandi starf. Kennsluefnið er í formi frásagnar sem leiðir lesandann inn í heim umhverfis- og auðlindafræðinnar. Efninu er fylgt úr hlaði með greinargerð þar sem farið er yfir markmiðið með henni og mikilvægi verkefnisins. Í greinargerðinn er einnig sagt frá því hvers vegna þessi leið varð fyrir valinu og hún studd rökum, einkum kennslufræðilegum og siðfræðilegum. Þar er einnig fjallað stuttlega um skapandi kennsluhætti, nýsköpunarmennt og reynslunám. Sagan Hvernig bjargar maður heiminum? segir frá því hvernig tveir framhalds- skólanemendur, Daníel og Snjólaug, kynnast í gegnum verkefnavinnu í umhverfis- og auðlindafræði. Lesandinn fær innsýn í daglegt líf þeirra um leið og stórum spurningum um tilvist mannsins á jörðinni er laumað inn í textann. Lesandinn verður jafnframt vitni að því hvernig Daníel og Snjólaug skilgreina umhverfis- og auðlindavanda, leita sér upplýsinga, lesa sér til um málefnið og loks hvernig þau takast á við þessi flóknu mál. Í kennsluefninu er einnig að finna skapandi verkefni fyrir lesendur eða nemendur sem hægt er að nýta við kennslu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét S. Á. Eymundardóttir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23300
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23300

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét S. Á. Eymundardóttir 1971-. Hvernig bjargar maður heiminum? Skapandi kennsluefni í umhverfis- og auðlindafræði. 2015. http://hdl.handle.net/1946/23300