Back to results

University of Iceland

Tvær algengar raskanir sem einkenna börn í íslenskum skólastofum

Abstract

dc:description.abstract

Á síðustu árum og áratugum hefur orðið fjölgun á börnum sem greinast með ADHD (athyglisbrestur með ofvirkni) eða einhverfu. Helstu einkenni ADHD eru athyglisbrestur, ofvirkni og hvatvísi. Rannsóknir sýna að það eru um 5% barna sem glíma við ADHD í dag. Helstu einkenni einhverfu varða tengsl og samspil við aðra, mál og tjáskipti, og að lokum áráttuhegðun. Á Íslandi eru rúmlega 1% einstaklinga með röskun á einhverfurófi, sem þýðir að hér á landi eru um 3.000 einstaklingar með þessa röskun. Kennarar í grunnskólum geta gert margt til þess að auðvelda nemendur með ADHD eða einhverfu skólagöngu sína, meðal annars hafa í huga hvernig best sé að skipuleggja kennslustofuna þannig að hægt sé að aðstoða nemendur persónulega við að skipuleggja sig í námi og að veita þeim umbun fyrir jákvæða hegðun. Fram kemur í lögum um grunnskóla að allir grunnskólanemendur eigi rétt á að fá kennslu sem henti þeim í hvetjandi námsumhverfi. Einnig kemur fram í lögum að þeir grunnskólanemendur sem eru með sérþarfir eigi rétt á ákveðum stuðning í námi í samræmi við sérþarfir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Dögg Halldórsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23199
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23199

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Dögg Halldórsdóttir 1984-. Tvær algengar raskanir sem einkenna börn í íslenskum skólastofum. 2015. http://hdl.handle.net/1946/23199