University of Iceland
Fjölþætt heilsurækt fyrir eldri einstaklinga : fimm ára eftirfylgnirannsókn
Abstract
dc:description.abstractInngangur: Á síðustu árum hefur þjóðin verið að eldast og eldri einstaklingum farið fjölgandi. Með heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi má bæta lífsgæði á efri árum. Að stunda reglulega hreyfingu gefur eldri einstaklingum möguleika á að lifa lengur sjálfstæðara lífi, auðveldar athafnir daglegs lífs og kemur í veg fyrir ótímabæra stofnvist. Markmið: Tilgangurinn með þessari rannsókn var að framkvæma eftirfylgnirannsókn á rannsókn sem hófst árið 2008 og bar vinnuheitið Við eldumst öll. Markmið þessarar rannsóknar var jafnframt að bera niðurstöður mælinga saman við fyrri mælingar, sér í lagi eftir að sex mánaða þjálfun lauk og eftir sex mánaða eftirfylgnimælingar í lok árs 2009. Brottfall þátttakanda var skoðað og rýnt í niðurstöður þeirra sem komu í 5 ára eftirfylgnimælingar. Aðferð: Rannsóknin var fimm ára eftirfylgnirannsókn sem náði til nokkurra heilsufarsbreyta, þar á meðal mælingar á hreyfifærni, liðleika, styrk, þoli, holdafari, daglegri hreyfingu og heilsutengdum lífsgæðum. Niðurstöður: Af þeim 117 einstaklingum sem hófu þátttöku í rannsókninni 2008 tóku 48 einstaklingar þátt í mælingum nú. Af þeim 69 sem ekki mættu í mælingar eru 14 látnir. Hópurinn sem mætti til mælinga hafði tapað styrk í fótum (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni og einnig tapað gripstyrk (p<0.001) út frá öllum fyrri mælingum. Blóðþrýstingur var lægri (p<0.001) samanborið við allar fyrri mælingar en hjartsláttur í hvíld hækkaði (p<0.001) samanborið við allar fyrri mælingar. Mittisummál lækkaði (p=0.01) frá upphafsmælingu og hreyfigeta versnaði hvað varðar heildar stigafjölda í SPPB-hreyfifærniprófi (p<0.001) og undirþáttum: standa upp úr stól (p<0.001), jafnvægi (p=0.01) og fjögurra metra gönguprófi (p<0.001). Hreyfijafnvægi var verra (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni, árangur í sex mínútna gönguprófi versnaði (p<0.001) miðað við allar fyrri mælingar og dagleg hreyfing minnkaði (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni. Umræða og ályktun: Hreyfigeta versnar með aldri ef einstaklingar stunda ekki reglulega skipulagða þjálfun. Niðurstöður sýna hve mikilvægt það er að sinna þessum aldurshópi vel, finna leiðir til að koma í veg fyrir hreyfiskerðingu eldri aldurshópa og væntanlega draga úr ótímabærri stofnanavist.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragna Baldvinsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23044
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23044