{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/23044"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/23044","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Fjölþætt heilsurækt fyrir eldri einstaklinga : fimm ára eftirfylgnirannsókn","abstract":"Inngangur: Á síðustu árum hefur þjóðin verið að eldast og eldri einstaklingum farið fjölgandi. Með heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi má bæta lífsgæði á efri árum. Að stunda reglulega hreyfingu gefur eldri einstaklingum möguleika á að lifa lengur sjálfstæðara lífi, auðveldar athafnir daglegs lífs og kemur í veg fyrir ótímabæra stofnvist. Markmið: Tilgangurinn með þessari rannsókn var að framkvæma eftirfylgnirannsókn á rannsókn sem hófst árið 2008 og bar vinnuheitið Við eldumst öll. Markmið þessarar rannsóknar var jafnframt að bera niðurstöður mælinga saman við fyrri mælingar, sér í lagi eftir að sex mánaða þjálfun lauk og eftir sex mánaða eftirfylgnimælingar í lok árs 2009. Brottfall þátttakanda var skoðað og rýnt í niðurstöður þeirra sem komu í 5 ára eftirfylgnimælingar. Aðferð: Rannsóknin var fimm ára eftirfylgnirannsókn sem náði til nokkurra heilsufarsbreyta, þar á meðal mælingar á hreyfifærni, liðleika, styrk, þoli, holdafari, daglegri hreyfingu og heilsutengdum lífsgæðum. Niðurstöður: Af þeim 117 einstaklingum sem hófu þátttöku í rannsókninni 2008 tóku 48 einstaklingar þátt í mælingum nú. Af þeim 69 sem ekki mættu í mælingar eru 14 látnir. Hópurinn sem mætti til mælinga hafði tapað styrk í fótum (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni og einnig tapað gripstyrk (p<0.001) út frá öllum fyrri mælingum. Blóðþrýstingur var lægri (p<0.001) samanborið við allar fyrri mælingar en hjartsláttur í hvíld hækkaði (p<0.001) samanborið við allar fyrri mælingar. Mittisummál lækkaði (p=0.01) frá upphafsmælingu og hreyfigeta versnaði hvað varðar heildar stigafjölda í SPPB-hreyfifærniprófi (p<0.001) og undirþáttum: standa upp úr stól (p<0.001), jafnvægi (p=0.01) og fjögurra metra gönguprófi (p<0.001). Hreyfijafnvægi var verra (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni, árangur í sex mínútna gönguprófi versnaði (p<0.001) miðað við allar fyrri mælingar og dagleg hreyfing minnkaði (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni. Umræða og ályktun: Hreyfigeta versnar með aldri ef einstaklingar stunda ekki reglulega skipulagða þjálfun. Niðurstöður sýna hve mikilvægt það er að sinna þessum aldurshópi vel, finna leiðir til að koma í veg fyrir hreyfiskerðingu eldri aldurshópa og væntanlega draga úr ótímabærri stofnanavist.","abstract_html":"Inngangur: Á síðustu árum hefur þjóðin verið að eldast og eldri einstaklingum farið fjölgandi. Með heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi má bæta lífsgæði á efri árum. Að stunda reglulega hreyfingu gefur eldri einstaklingum möguleika á að lifa lengur sjálfstæðara lífi, auðveldar athafnir daglegs lífs og kemur í veg fyrir ótímabæra stofnvist. Markmið: Tilgangurinn með þessari rannsókn var að framkvæma eftirfylgnirannsókn á rannsókn sem hófst árið 2008 og bar vinnuheitið Við eldumst öll. Markmið þessarar rannsóknar var jafnframt að bera niðurstöður mælinga saman við fyrri mælingar, sér í lagi eftir að sex mánaða þjálfun lauk og eftir sex mánaða eftirfylgnimælingar í lok árs 2009. Brottfall þátttakanda var skoðað og rýnt í niðurstöður þeirra sem komu í 5 ára eftirfylgnimælingar. Aðferð: Rannsóknin var fimm ára eftirfylgnirannsókn sem náði til nokkurra heilsufarsbreyta, þar á meðal mælingar á hreyfifærni, liðleika, styrk, þoli, holdafari, daglegri hreyfingu og heilsutengdum lífsgæðum. Niðurstöður: Af þeim 117 einstaklingum sem hófu þátttöku í rannsókninni 2008 tóku 48 einstaklingar þátt í mælingum nú. Af þeim 69 sem ekki mættu í mælingar eru 14 látnir. Hópurinn sem mætti til mælinga hafði tapað styrk í fótum (p&lt;0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni og einnig tapað gripstyrk (p&lt;0.001) út frá öllum fyrri mælingum. Blóðþrýstingur var lægri (p&lt;0.001) samanborið við allar fyrri mælingar en hjartsláttur í hvíld hækkaði (p&lt;0.001) samanborið við allar fyrri mælingar. Mittisummál lækkaði (p=0.01) frá upphafsmælingu og hreyfigeta versnaði hvað varðar heildar stigafjölda í SPPB-hreyfifærniprófi (p&lt;0.001) og undirþáttum: standa upp úr stól (p&lt;0.001), jafnvægi (p=0.01) og fjögurra metra gönguprófi (p&lt;0.001). Hreyfijafnvægi var verra (p&lt;0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni, árangur í sex mínútna gönguprófi versnaði (p&lt;0.001) miðað við allar fyrri mælingar og dagleg hreyfing minnkaði (p&lt;0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni. Umræða og ályktun: Hreyfigeta versnar með aldri ef einstaklingar stunda ekki reglulega skipulagða þjálfun. Niðurstöður sýna hve mikilvægt það er að sinna þessum aldurshópi vel, finna leiðir til að koma í veg fyrir hreyfiskerðingu eldri aldurshópa og væntanlega draga úr ótímabærri stofnanavist.","abstract_has_math":false,"creators":["Ragna Baldvinsdóttir 1991-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2015,"date_issued":"2015-09-28","date_published":"2015-09-28","updated_at":"2026-07-27T21:42:24Z","subjects":["Meistaraprófsritgerðir","Íþrótta- og heilsufræði","Aldraðir","Heilsufar","Lífsgæði","Heilsuefling","Megindlegar rannsóknir"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/23044","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Ragna Baldvinsdóttir 1991-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2015-09-28T11:16:51Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2015-09-28T11:16:51Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2015-09-28"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Meistaraprófsritgerðir","Íþrótta- og heilsufræði","Aldraðir","Heilsufar","Lífsgæði","Heilsuefling","Megindlegar rannsóknir"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/23044"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Inngangur: Á síðustu árum hefur þjóðin verið að eldast og eldri einstaklingum farið fjölgandi. Með heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi má bæta lífsgæði á efri árum. Að stunda reglulega hreyfingu gefur eldri einstaklingum möguleika á að lifa lengur sjálfstæðara lífi, auðveldar athafnir daglegs lífs og kemur í veg fyrir ótímabæra stofnvist. Markmið: Tilgangurinn með þessari rannsókn var að framkvæma eftirfylgnirannsókn á rannsókn sem hófst árið 2008 og bar vinnuheitið Við eldumst öll. Markmið þessarar rannsóknar var jafnframt að bera niðurstöður mælinga saman við fyrri mælingar, sér í lagi eftir að sex mánaða þjálfun lauk og eftir sex mánaða eftirfylgnimælingar í lok árs 2009. Brottfall þátttakanda var skoðað og rýnt í niðurstöður þeirra sem komu í 5 ára eftirfylgnimælingar. Aðferð: Rannsóknin var fimm ára eftirfylgnirannsókn sem náði til nokkurra heilsufarsbreyta, þar á meðal mælingar á hreyfifærni, liðleika, styrk, þoli, holdafari, daglegri hreyfingu og heilsutengdum lífsgæðum. Niðurstöður: Af þeim 117 einstaklingum sem hófu þátttöku í rannsókninni 2008 tóku 48 einstaklingar þátt í mælingum nú. Af þeim 69 sem ekki mættu í mælingar eru 14 látnir. Hópurinn sem mætti til mælinga hafði tapað styrk í fótum (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni og einnig tapað gripstyrk (p<0.001) út frá öllum fyrri mælingum. Blóðþrýstingur var lægri (p<0.001) samanborið við allar fyrri mælingar en hjartsláttur í hvíld hækkaði (p<0.001) samanborið við allar fyrri mælingar. Mittisummál lækkaði (p=0.01) frá upphafsmælingu og hreyfigeta versnaði hvað varðar heildar stigafjölda í SPPB-hreyfifærniprófi (p<0.001) og undirþáttum: standa upp úr stól (p<0.001), jafnvægi (p=0.01) og fjögurra metra gönguprófi (p<0.001). Hreyfijafnvægi var verra (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni, árangur í sex mínútna gönguprófi versnaði (p<0.001) miðað við allar fyrri mælingar og dagleg hreyfing minnkaði (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni. Umræða og ályktun: Hreyfigeta versnar með aldri ef einstaklingar stunda ekki reglulega skipulagða þjálfun. Niðurstöður sýna hve mikilvægt það er að sinna þessum aldurshópi vel, finna leiðir til að koma í veg fyrir hreyfiskerðingu eldri aldurshópa og væntanlega draga úr ótímabærri stofnanavist."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Fjölþætt heilsurækt fyrir eldri einstaklinga : fimm ára eftirfylgnirannsókn","Multimodal Training Intervention for Older Individuals : A Five Years Follow-up"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Ragna Baldvinsdóttir 1991-"],"dc:date.accessioned":["2015-09-28T11:16:51Z"],"dc:date.available":["2015-09-28T11:16:51Z"],"dc:date.issued":["2015-09-28"],"dc:description.abstract":["Inngangur: Á síðustu árum hefur þjóðin verið að eldast og eldri einstaklingum farið fjölgandi. Með heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi má bæta lífsgæði á efri árum. Að stunda reglulega hreyfingu gefur eldri einstaklingum möguleika á að lifa lengur sjálfstæðara lífi, auðveldar athafnir daglegs lífs og kemur í veg fyrir ótímabæra stofnvist. Markmið: Tilgangurinn með þessari rannsókn var að framkvæma eftirfylgnirannsókn á rannsókn sem hófst árið 2008 og bar vinnuheitið Við eldumst öll. Markmið þessarar rannsóknar var jafnframt að bera niðurstöður mælinga saman við fyrri mælingar, sér í lagi eftir að sex mánaða þjálfun lauk og eftir sex mánaða eftirfylgnimælingar í lok árs 2009. Brottfall þátttakanda var skoðað og rýnt í niðurstöður þeirra sem komu í 5 ára eftirfylgnimælingar. Aðferð: Rannsóknin var fimm ára eftirfylgnirannsókn sem náði til nokkurra heilsufarsbreyta, þar á meðal mælingar á hreyfifærni, liðleika, styrk, þoli, holdafari, daglegri hreyfingu og heilsutengdum lífsgæðum. Niðurstöður: Af þeim 117 einstaklingum sem hófu þátttöku í rannsókninni 2008 tóku 48 einstaklingar þátt í mælingum nú. Af þeim 69 sem ekki mættu í mælingar eru 14 látnir. Hópurinn sem mætti til mælinga hafði tapað styrk í fótum (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni og einnig tapað gripstyrk (p<0.001) út frá öllum fyrri mælingum. Blóðþrýstingur var lægri (p<0.001) samanborið við allar fyrri mælingar en hjartsláttur í hvíld hækkaði (p<0.001) samanborið við allar fyrri mælingar. Mittisummál lækkaði (p=0.01) frá upphafsmælingu og hreyfigeta versnaði hvað varðar heildar stigafjölda í SPPB-hreyfifærniprófi (p<0.001) og undirþáttum: standa upp úr stól (p<0.001), jafnvægi (p=0.01) og fjögurra metra gönguprófi (p<0.001). Hreyfijafnvægi var verra (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni, árangur í sex mínútna gönguprófi versnaði (p<0.001) miðað við allar fyrri mælingar og dagleg hreyfing minnkaði (p<0.001) samanborið við 6 mánaða þjálfun og 6 mánaða eftirfylgni. Umræða og ályktun: Hreyfigeta versnar með aldri ef einstaklingar stunda ekki reglulega skipulagða þjálfun. Niðurstöður sýna hve mikilvægt það er að sinna þessum aldurshópi vel, finna leiðir til að koma í veg fyrir hreyfiskerðingu eldri aldurshópa og væntanlega draga úr ótímabærri stofnanavist."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/23044"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Meistaraprófsritgerðir","Íþrótta- og heilsufræði","Aldraðir","Heilsufar","Lífsgæði","Heilsuefling","Megindlegar rannsóknir"],"dc:title":["Fjölþætt heilsurækt fyrir eldri einstaklinga : fimm ára eftirfylgnirannsókn","Multimodal Training Intervention for Older Individuals : A Five Years Follow-up"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:42:24Z"}