Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er fjallað um niðurstöður á athugunum sem gerðar voru í leikskóla í Reykjavík vorið 2006. Gerð var athugun á því hvernig stuðning fatlað barn fékk í leik og daglegum athöfnum og hvernig samskipti það barn átti við önnur börn í leikskólanum. Fylgst var með tæplega þriggja ára dreng með Downs-heilkenni. Notaðar voru eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem gagna var aflað með þátttökuathugunum og opnu viðtali. Helstu niðurstöður eru þær að drengurinn var frekar utanveltu í leik og í samskiptum við önnur börn. Hann var ekki raunverulegur þátttakandi í leik þótt hann væri til staðar. Þær sem höfðu umsjón með stuðningi við drenginn voru hins vegar meðvitaðar um mikilvægi þess að styðja hann í leik og lögðu sig fram við það. Þær höfðu nám án aðgreiningar að leiðarljósi í sínu starfi. Ekki fékk hann þó alltaf þann stuðning í leik sem æskilegt hefði verið, t.d. vegna kaffitíma starfsfólks. Niðurstöðurnar gefa tilefni til að ætla að þörf sé á að skoða nánar þátttöku barna með þroskahömlun í leik og þann stuðning sem þau fá.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Guðrún Sigurjónsdóttir
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/218
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/218