Back to results

University of Iceland

Reynsla kvenna og karla af fyrstu ráðningarviðtölum og launasamningum

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna mun á undirbúningi og reynslu kvenna og karla í ráðningarviðtölum og samningum um laun. Tekin voru hálfopin viðtöl við átta einstaklinga, fjórar konur og fjóra karla, sem eru með meistarapróf og starfa annað hvort sem lögfræðingar eða verkfræðingar. Niðurstöður sýndu að þó ýmislegt hafi verið sameiginlegt í undirbúningi kynjanna, var reynsla þeirra í ráðningarviðtölum og launasamningum ólík. Konur og karlar byggðu launavæntingar sínar á samanburði við einstaklinga af sínu kyni. Báðum kynjum fannst samningar um laun óþægilegir, en karlar voru virkari þátttakendur í samningaferlinu en konur. Samskipti á vinnustað var hindrun fyrir konur í að semja um laun, en kostur fyrir karla. Þeir sem voru með skýr starfsferilsmarkmið voru virkari í samningaviðræðum. Niðurstöðurnar varpi ljósi á að áhrif kynjakerfisins leynast víða og koma fram í ólíkri reynslu kynjanna í ráðningarviðtölum og betri launasamningum karla. Náms- og starfsráðgjafar geta nýtt sér niðurstöðurnar í ráðgjöf um ráðningarviðtöl og launasamninga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Fjeldsted Sveinsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20971
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20971

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Fjeldsted Sveinsdóttir 1984-. Reynsla kvenna og karla af fyrstu ráðningarviðtölum og launasamningum. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20971