Back to results

University of Iceland

Líf í ljósi sögu sólarhringsstofnunar : lífsaga Ólafs Guðmundssonar

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi er í tveimur hlutum. Annars vegar fjalla ég um sögu fólks með þroskahömlun á Íslandi og dreg í því skyni sérstaklega fram sögu Kópavogshælis sem var lengi stærsta stofnunin hér á landi. Hins vegar skrifaði ég lífssögu Ólafs Guðmundssonar og birtist hún í seinni hluta ritgerðarinnar. Markmið sögunnar var að fá fram upplifun viðmælanda míns, Ólafs Guðmundssonar, á lífi sínu og aðstæðum og draga fram dæmi um hvernig þjónustu við fólk með þroskahömlun hefur verið háttað á Íslandi frá miðri 20. öld. Ég hóf þessa vinnu fyrir nokkrum árum og hef annars vegar byggt á verkefni sem unnið var vorið 2005 í námskeiði í eigindlegri aðferðarfræði og hins vegar á verkefni í fötlunarfræði sem var unnið árið á undan. Í upphafi var ætlunin að beina fyrst og fremst athyglinni að lífssögu Ólafs. Eftir að hafa rýnt í sögu Kópavoghælis og lesið um lífssögurannsóknir tók ég þá ákvörðun að fjalla bæði um opinbera sögu hér á landi og út frá henni skoða lífssögu Ólafs. Niðurstöður gefa til kynna að líf Ólafs hefur mótast af þeim valkostum sem honum stóðu til boða á hverjum tíma. Lög fram til ársins 1979 gerðu einungis ráð fyrir stofnabundinni þjónustu. Ný hugmyndafræði, sem kennd hefur verið við eðlilegt líf og samfélagsþátttöku, fór að ryðja sér til rúms á 6. áratug síðustu aldar. Hagsmunasamtök fóru þá að berjast fyrir breytingum á viðhorfum og þjónustu fyrir fólk með fötlun. Þrátt fyrir að svo hafi verið lítur út fyrir að framkvæmdin á þjónustunni hafi verið töluvert á eftir hugmyndafræðinni. Ólafur hefur til dæmis búið inni á mismunandi stofnunum stóran hluta af lífi sínu. Núgildandi lög eiga að tryggja fólki með fötlun, fulla þátttöku í samfélaginu, jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélagsþegna. Lífssaga Ólafs sýnir að hann hefur ekki haft tækifæri til fullrar þátttöku í samfélaginu. Lífskjör hans hafa færst í átt að jafnrétti og sambærilegra lífskjara en hann hefur lifað lífi sínu innan þeirra takmarkana sem samfélagið hefur sett fólki í hans stöðu. Lykilorð: Sólarhringsstofnun, fólk með þroskahömlun, lífssaga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrefna Sigurðardóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/1889
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/1889

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrefna Sigurðardóttir. Líf í ljósi sögu sólarhringsstofnunar : lífsaga Ólafs Guðmundssonar. 2008. http://hdl.handle.net/1946/1889