Back to results

University of Iceland

Stúdentshúfur í Svíþjóð. Viðskiptaáætlun

Abstract

dc:description.abstract

Fyrirtækið S.Þ. Stúdentshúfur hefur áhuga á að hefja sölu á stúdentshúfum í Svíþjóð í þeirri mynd sem það hefur gert á Íslandi um árabil. Með gerð viðskiptaáætlunar er hagkvæmni slíks verkefnis metin og leitast við að sjá hvort hugmyndin sé raunhæfur kostur. Einkahlutafélag verður stofnað í Svíþjóð og verður það fjármagnað með eigið fé og láni frá móðurfélagi. Tveir starfsmenn verða í vinnu hjá fyrirtækinu, annar þeirra er sænskur og verður hann staðsetturí Svíþjóð en hinn er einn af eigendunum og staðsettur á Íslandi. Markaðnum eru gerð góð skil þar sem farið er yfir þá samkeppni sem ríkir á markaðnum og það vöruframboð sem er í boði í dag. Markhópurinn er greindur og farið er í gegnum hvernig markaðssetningu fyrirtækisins verður háttað. Samkvæmt áætlunum er gert ráð fyrir þó nokkrum kostnaði á fyrsta árinu en hann skiptist í stofnkostnað, launakostnað, stjórnunarkostnað og kaup á birgðum. Ekki er gert ráð fyrir tekjum á fyrsta árinu en þær koma á öðru ári. Samkvæmt áætlunum mun félagið skila hagnaði strax á öðru ári og hagnaður mun síðan aukast með árunum. Niðurstöður verkefnisins benda eindregið til að grundvöllur sé fyrir rekstrinum miðað við núverandi rekstraráætlun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinar Atli Skarphéðinsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11207
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11207

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinar Atli Skarphéðinsson 1987-. Stúdentshúfur í Svíþjóð. Viðskiptaáætlun. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11207