Reykjavík University
Fjárhagslegt ofbeldi í nánum samböndum : samkvæmt 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940
Abstract
dc:description.abstractMeginviðfangsefni ritgerðarinnar er að skoða hvar mörkin liggja á milli fjárhagslegs ofbeldis í nánu sambandi og háttsemi sem telst vera eðlileg. Það er hver hlutlæg og huglæg skilyrði fjárhagslegs ofbeldis eru í skilningi 218. gr. b hgl. og með hvaða hætti sé hægt að sanna slíka háttsemi fyrir dómstólum. Lítið hefur reynt á fjárhagslegt ofbeldi fyrir dómstólum og því var litið til norskrar réttarframkvæmdar til fyllingar íslenskum rétti enda var Noregur helsta fyrirmynd refsiréttarnefndar að lögfestingu 218. gr. b. hgl. um ofbeldi í nánum samböndum. Komist var að þeirri niðurstöðu að gerendur þurfa að hafa sýnt af sér ásetning til þess að búa þannig um hnútana að þeir hafi stjórn á fjármunum og eignum svo brotaþolar eigi erfiðara um vik að komast undan ofbeldinu. Mörkin á milli fjárhagslegs ofbeldis í nánu sambandi og háttsemi sem telst vera eðlileg eru fremur óskýr. Þó eru vísbendingar um að ef brotaþoli á ekki bankakort og honum er skammtað fjármuni teljist sú háttsemi vera fjárhagslegt ofbeldi. Ef brotaþoli nær hins vegar að sinna daglegum þörfum sínum og á bankakort þá mögulega fellur það ekki undir hugtakið. Það er þó skýrt að ef gerandi krefst þess að brotaþoli sýni sér bankareikning sinn þá telst það ekki til fjárhagslegs ofbeldis. Við sönnun á fjárhagslegu ofbeldi samkvæmt 218. gr. b hgl. er beitt hefðbundnu sönnunarmati líkt og almennt gildir í málum um ofbeldi í nánum samböndum sem þýðir að framburður vitna og sérfræðinga uppfyllir skilyrðin og spilar þar lykilhlutverk við sönnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sandra Ólafsdóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53642
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53642