Reykjavík University
Tafir við meðferð sakamála : samanburður á stöðu sakbornings og brotaþola þegar málsmeðferð tefst
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um tafir við meðferð sakamála og leitast við að svara þeirri rannsóknarspurningu hvernig réttaráhrif slíkra tafa birtast gagnvart sakborningi og brotaþola, og hvort staða þeirra sé sambærileg þegar málsmeðferð tefst. Í upphafi er gerð grein fyrir lagaumhverfi réttindanna, meginreglum sakamálaréttarfars og þeirri grundvallarreglu að tryggja bæði skilvirka og réttláta málsmeðferð. Þá er fjallað um réttarstöðu sakbornings annars vegar og brotaþola hins vegar. Í framhaldinu er dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu um málshraðaregluna greind, einkum þau viðmið um hvað telst hæfilegur tími og þær jákvæðu skyldur sem hvíla á ríkjum bæði gagnvart sakborningi og brotaþola. Þá eru raktar helstu afleiðingar tafa, þar á meðal áhrif á refsingu, fyrningu, sönnunarfærslu og mögulega skaðabótaábyrgð ríkisins. Sérstök áhersla er lögð á dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu í málum gegn Íslandi, þar sem dregnar verða fram kröfur um skilvirka rannsókn og ábyrgð ríkisins þegar tafir eiga sér stað, auk þess sem metið er hvaða þýðingu þeir dómar kunna að hafa í íslenskum rétti. Í kjölfarið er fjallað um réttarþróun hér á landi, m.a. stöðu brotaþola í framkvæmd, rétt þeirra til bóta og þau sjónarmið sem fram hafa komið hjá eftirlitsaðilum og í opinberri umræðu um málsmeðferðartíma. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til að réttaráhrif tafa beinist að meginstefnu að sakborningi, einkum í formi ívilnunar við refsingu, á meðan áhrif þeirra á stöðu brotaþola eru síður skýr og að jafnaði ekki bundin við sjálfstæð úrræði innan sakamálsins. Þótt greina megi ákveðna þróun í átt að aukinni viðurkenningu á rétti brotaþola til skilvirkrar rannsóknar, einkum á grundvelli alþjóðlegra mannréttindaskuldbindinga, virðist sú þróun enn í mótun í íslenskri dómaframkvæmd. Ritgerðin leiðir þannig í ljós að áhrif tafa á málsmeðferð sakamála eru ekki samhverf gagnvart þessum aðilum og gefur tilefni til að velta upp hvort núverandi fyrirkomulag tryggi nægilega skýra og fyrirsjáanlega stöðu brotaþola þegar tafir verða á rannsókn eða meðferð máls.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sara Rakel Kristinsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53633
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53633