Reykjavík University
Áhrif koffínneyslu á svefn afrekskvenna í knattspyrnu á Íslandi : með áherslu á svefnlengd og svefngæði
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort magn og tímasetning koffíns hafi áhrif á svefnlengd og svefngæði afrekskvenna í knattspyrnu á Íslandi. Þátttakendur voru 31 knattspyrnukona (meðalaldur 22,6 ± 4,0 ár) úr Bestu deild og 1. deild kvenna í knattspyrnu á Íslandi. Rannsóknin var megindleg þversniðsrannsókn þar sem þátttakendur svöruðu spurningalista um koffínneyslu, svefnlengd og svefngæði. Tölfræðileg greining var gerð með Spearman-raðfylgniprófi og Mann-Whitney U-prófi. Helstu niðurstöður sýndu að koffínneysla meðal þátttakenda var almennt lág eða að meðaltali 0.77 ± 0.88 drykkir á dag og 90.3% neyttu ekkert koffíns eftir klukkan 18:00. Þátttakendur sváfu að meðaltali 7 klukkustundir og 57 mínútur á virkum dögum og 8 klukkustundir og 18 mínútur um helgar, en tæplega 40% þátttakenda upplifðu hvorki né eða slök svefngæði. Engin tölfræðilega marktæk tengsl fundust milli koffínmagns eða tímasetningar koffínneyslu og svefnlengdar (p>0.05) né svefngæða (p>0.05). Niðurstöðurnar benda til þess að við þá lágu koffínneyslu sem mælist í þessum hópi hafi koffín ekki marktæk áhrif á svefnlengd eða svefngæði, og því skýrir koffínneysla ekki slök svefngæði meðal þátttakenda. Þörf er á frekari rannsóknum með stærra úrtaki og hlutlægum svefnmælingum til að fá skýrari mynd af tengslum koffíns og svefns ásamt öðrum áhrifaþáttum hjá afrekskonum í knattspyrnu. Leitarorð: Koffín, svefngæði, svefnlengd, knattspyrna, svefnvandamál
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrund Benediktsdóttir 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53587
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53587