Back to results

Reykjavík University

Sterkari grunnur : handbók fyrir íþróttakennara og þjálfara í hreyfiþjálfun einstaklinga með helftarlömun (CP)

Abstract

dc:description.abstract

Cerebral Palsy (CP) er fötlun sem hefur áhrif á hreyfifærni og líkamlega færni einstaklingsins. Einstaklingar með helftarlömun, sem er ein tegund af CP, glíma oft við skert jafnvægi og samhæfingu. Því er mikilvægt að vinna markvisst með styrktaræfingar til að bæta og viðhalda þessa þætti. Þátttaka barna með CP í íþróttum með ófötluðum jafnöldrum er mjög mikilvæg þar sem að hún stuðlar að aukinni félagsfærni, líkamlegum ávinningi og almennri vellíðan. Staðan á Íslandi er þannig að lítið er af áberandi og aðgengilegu kennsluefni fyrir íþróttakennara og þjálfara sem fjallar sérstaklega um hreyfiþjálfun barna með helftarlömun. Sjúkraþjálfarar og aðrir sérfræðingar sjá um sérhæfða þjónustu og meðferðir fyrir einstaklinga með CP, en lítið er til um handbækur um æfingar sem íþróttakennarar og þjálfarar geta nýtt til að aðlaga tímanna sína. Þetta er mikilvægt þar sem börnin eiga rétt á fullri þátttöku í íþróttakennslu og þjálfun. Ef æfingarnar eru ekki aðlagaðar að getu þeirra getur það aukið kvíða, minnkuðu sjálfstrausti og neikvæðri upplifun af hreyfingu. Börn sem upplifa sig mikið útundan eru í hættu á minni þátttöku, tapi á félagslegum tengslum og jákvæðum áhrifum hreyfingar. Í verkefninu er þróuð handbók fyrir íþróttakennara og þjálfara sem inniheldur styrktaræfingar sem leggja áherslu á kjarna, jafnvægi, samhæfingu auk æfinga sem styðja við daglegar athafnir. Hver æfing er sett fram í fjórum erfiðleikastigum, þar sem 1 er auðveldast og stig 4 erfiðast. Markmiðið er að auka aðgengi, stuðla að jákvæðri upplifun og gera börnum með CP kleift að taka þátt í íþróttum af meira sjálfstrausti og færri hindrunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birta Sif Kristmannsdóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53575
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53575

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Sif Kristmannsdóttir 1995-. Sterkari grunnur : handbók fyrir íþróttakennara og þjálfara í hreyfiþjálfun einstaklinga með helftarlömun (CP). 2026. https://hdl.handle.net/1946/53575