Back to results

Reykjavík University

Áhrif hlutdeildarlána á stöðu fyrstu kaupenda á höfuðborgarsvæðinu : hafa hlutdeildarlán aukið aðgengi fyrstu kaupenda að fasteignamarkaði eða beint eftirspurn þeirra að íbúðum sem uppfylla skilyrði úrræðisins?

Abstract

dc:description.abstract

Aðgengi fyrstu kaupenda að húsnæðismarkaði hefur þrengst undanfarin ár samhliða hækkandi fasteignaverði, aukinni greiðslubyrði og strangari lánþegaskilyrðum. Hlutdeildarlán voru innleidd sem sértækt úrræði til að auðvelda fyrstu kaupendum að eignast húsnæði, en virkni slíkra úrræða ræðst meðal annars af framboði íbúða sem uppfylla skilyrði úrræðisins. Markmið rannsóknarinnar er að leggja mat á hvort hlutdeildarlán hafi aukið aðgengi fyrstu kaupenda að fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu eða beint eftirspurn þeirra að íbúðum sem uppfylla skilyrði úrræðisins. Greiningin byggir á gögnum um fasteignaviðskipti á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 2018 til 2025 þar sem difference-in-differences aðferð er beitt. Í aðallíkani er þróun hlutdeildar fyrstu kaupenda borin saman milli íbúða sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána og sambærilegra íbúða utan úrræðisins. Til að styðja túlkun niðurstaða er einnig notast við viðbótarlíkan sem byggir á fjölda fyrstu kaupenda. Meginniðurstöður benda til þess að bæði hlutdeild og fjöldi fyrstu kaupenda hafi aukist meira í íbúðum sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána en í samanburðarhópi. Niðurstöðurnar benda því til jákvæðra tengsla milli hlutdeildarlána og aukinnar þátttöku fyrstu kaupenda í íbúðum sem falla undir úrræðið. Þó veita þær ekki nægilega sterkan grunn til að fullyrða að aðgengi fyrstu kaupenda að fasteignamarkaði hafi raunverulega aukist, enda nær greiningin aðeins til íbúða sem telja má líklegan valkost fyrir fyrstu kaupendur almennt. Hluti áhrifanna kann að endurspegla tilfærslu eftirspurnar og möguleg ruðningsáhrif. Jafnframt ber að túlka niðurstöðurnar með fyrirvara þar sem forsenda um samhliða þróun er veik. Af þeim sökum er ekki hægt að staðfesta orsakaáhrif, heldur einungis draga varfærnar ályktanir um tengsl hlutdeildarlána við stöðu fyrstu kaupenda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Petra Marteinsdóttir 2003-
  • Viktoría Ósk Kjærnested 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53424
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53424

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Petra Marteinsdóttir 2003-; Viktoría Ósk Kjærnested 2003-. Áhrif hlutdeildarlána á stöðu fyrstu kaupenda á höfuðborgarsvæðinu : hafa hlutdeildarlán aukið aðgengi fyrstu kaupenda að fasteignamarkaði eða beint eftirspurn þeirra að íbúðum sem uppfylla skilyrði úrræðisins?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53424