Reykjavík University
„Raunveruleikinn kemur svo og slær mann í andlitið“ : stjórnun og ákvarðanataka æðstu stjórnenda í daglegum rekstri
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að öðlast dýpri skilning á því hvernig æðstu stjórnendur gera grein fyrir eigin stjórnun og ákvarðanatöku í daglegum rekstri. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru sex viðtöl við forstjóra og framkvæmdastjóra fyrirtækja á neytendamarkaði. Gögnin voru greind með þemagreiningu og úr greiningunni komu fram fimm þemu: að virkja og leiða starfsfólk, samskipti og traust, fjölbreytt og ófyrirsjáanlegt starf stjórnenda, ákvarðanataka og mikilvægi upplýsinga og áskoranir í starfi. Niðurstöðurnar benda til þess að leiðtogahæfni, valdefling og traust hafi gegnt mikilvægu hlutverki í frásögnum viðmælenda af eigin stjórnun. Jafnframt kom fram að ákvarðanataka væri mikilvægur þáttur í daglegum rekstri þeirra, þar sem gögn, reynsla og innsæi virtust styðja hvert annað. Starf stjórnenda einkennist jafnframt af fjölbreytni og ófyrirsjáanleika. Í frásögnum viðmælenda komu mannlegir þættir starfsins sérstaklega sterkt fram sem krefjandi hluti stjórnunar, einkum samskipti, ábyrgð og ákvarðanir sem hafa bein áhrif á starfsfólk.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Berglind Rós Leifsdóttir 2001-
- Sunna Karen Steinmarsdóttir 2003-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53422
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53422