Back to results

Reykjavík University

„Raunveruleikinn kemur svo og slær mann í andlitið“ : stjórnun og ákvarðanataka æðstu stjórnenda í daglegum rekstri

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að öðlast dýpri skilning á því hvernig æðstu stjórnendur gera grein fyrir eigin stjórnun og ákvarðanatöku í daglegum rekstri. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru sex viðtöl við forstjóra og framkvæmdastjóra fyrirtækja á neytendamarkaði. Gögnin voru greind með þemagreiningu og úr greiningunni komu fram fimm þemu: að virkja og leiða starfsfólk, samskipti og traust, fjölbreytt og ófyrirsjáanlegt starf stjórnenda, ákvarðanataka og mikilvægi upplýsinga og áskoranir í starfi. Niðurstöðurnar benda til þess að leiðtogahæfni, valdefling og traust hafi gegnt mikilvægu hlutverki í frásögnum viðmælenda af eigin stjórnun. Jafnframt kom fram að ákvarðanataka væri mikilvægur þáttur í daglegum rekstri þeirra, þar sem gögn, reynsla og innsæi virtust styðja hvert annað. Starf stjórnenda einkennist jafnframt af fjölbreytni og ófyrirsjáanleika. Í frásögnum viðmælenda komu mannlegir þættir starfsins sérstaklega sterkt fram sem krefjandi hluti stjórnunar, einkum samskipti, ábyrgð og ákvarðanir sem hafa bein áhrif á starfsfólk.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Berglind Rós Leifsdóttir 2001-
  • Sunna Karen Steinmarsdóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53422
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53422

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Rós Leifsdóttir 2001-; Sunna Karen Steinmarsdóttir 2003-. „Raunveruleikinn kemur svo og slær mann í andlitið“ : stjórnun og ákvarðanataka æðstu stjórnenda í daglegum rekstri. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53422