Reykjavík University
Sjálfbær fjármál og markaðsmisnotkun : Getur grænþvottur talist markaðsmisnotkun samkvæmt markaðssvikareglugerðinni (MAR)?
Abstract
dc:description.abstractMarkaðssvikareglugerðinni (MAR) var komið á fót til þess að tryggja virkni fjármálamarkaða og hagsmuni þeirra sem inni á honum eru. Eitt af því sem regluverkið leggur bann við er markaðsmisnotkun, sem er raunar ósamhverf dreifing upplýsinga. Slíkt er til þess fallið að grafa undan trausti markaðarins sem leiðir til þess að fjárfestar fara með fé sitt annað. Það er svokallaður markaðsbrestur. Með frekari áherslu alþjóðasamfélagsins á sjálfbærni og tilkomu grænna fjármálaafurða og markaða hefur grænþvottur gert sig gildandi. Í honum felst að fyrirtæki miðla upplýsingum um að fyrirtæki sitt eða vörur sínar séu umhverfisvænni en þær eru í raun og veru, einkum til að laða að sér fjárfesta og fjármagn. Grænþvottur er til þess fallinn að rýra tiltrú fjárfesta á sjálfbærniupplýsingum á markaði sem hindrar fjármögnun fyrirtækja og verkefna sem eru raunverulega umhverfisvæn. Út frá fræðiritum og dómaframkvæmd voru færð rök fyrir því að slík upplýsingagjöf sé röng eða misvísandi, sem er annað tveggja skilyrða markaðsmisnotkunar samkvæmt MAR. Vikið var að seinna skilyrðinu þar sem mat var lagt á það hvort grænþvottur gæti falið í sér mikilvægar upplýsingar sem varða gildissvið reglugerðarinnar, þ.e. hafa eða séu líklegar til að hafa áhrif á virði fjármálagerninga. Komist var að því að upplýsingar sem miðlað er með grænþvotti kunni að fela í sér mikilvægar upplýsingar, þar sem þær eru líklegar til þess að hafa áhrif á fjárfestingarákvörðun skynsams fjárfestis, einkum og sér í lagi vegna áherslu nútímafjárfesta á ESG-samræmi. Að lokum komst höfundur að því að markaðssvikaregluverkið væri nægilega burðugt til þess að taka á grænþvotti að einhverju marki. Þó verður að telja nauðsynlegt að frekari reglusetning eigi sér stað ef við ætlum okkur að ná betri tökum á honum og stuðla að sjálfbærni okkar sem samfélags.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aron Sigurvinsson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51027
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51027