Back to results

Reykjavík University

Efnislegt mat á láréttum samrunum : með hliðsjón af helstu skaðakenningum

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum áratugum hefur aukin alþjóðavæðing og breytt viðskiptaumhverfi haft veruleg áhrif á starfsemi fyrirtækja og stuðlað að aukinni tíðni samruna. Samruni fyrirtækja getur bæði styrkt samkeppnisstöðu á stærri mörkuðum og leitt til hagræðingar í rekstri. Hins vegar getur hann einnig haft skaðleg áhrif á virka samkeppni, sérstaklega þegar um er að ræða lárétta samruna milli beinna samkeppnisaðila á sama markaði. Í þessari ritgerð er fjallað um efnislegt mat samkeppnisyfirvalda á láréttum samruna, með sérstakri áherslu á þær skaðakenningar sem liggja að baki mati á samkeppnishamlandi áhrifum þeirra. Rýnt er í hvernig samrunar geta aukið markaðsstyrk aðila, leitt til hærra verðs, rýrs vöruúrvals, lakari gæða eða minni hvata til nýsköpunar. Samrunareglur gegna hér lykilhlutverki í því að vernda virka samkeppni og tryggja áframhaldandi ávinning neytenda. Ritgerðin tekur mið af samrunareglum bæði á Íslandi og innan Evrópusambandsins, með áherslu á samrunareglugerð ESB nr. 139/2004 og íslensk samkeppnislög nr. 44/2005, með síðari breytingum. Fjallað er um hvaða atriði samkeppnisyfirvöld leggja til grundvallar við mat á láréttum samruna, þar á meðal markaðsskilgreiningu, áhrif á virka samkeppni og hvort skilyrði séu uppfyllt til íhlutunar. Eitt helsta umfjöllunarefni ritgerðarinnar eru þær skaðakenningar sem koma til skoðunar við mat á lárettum samruna. Ritgerðin fjallar einnig um málsmeðferð samrunamála frá undirbúningi til lokaákvörðunar, með áherslu á tilkynningarskyldu, gerðir samrunatilkynninga og rannsóknarheimildir samkeppnisyfirvalda. Til að ramma inn efnislega nálgun samkeppnisyfirvalda er einnig fjallað um þau mótvægisrök sem samrunaaðilar geta lagt fram, svo sem kaupendastyrk og hagræðingu eða skilyrði sem hægt er að leggja til, til að koma til móts við mögulegar neikvæðar afleiðingar samruna. Metið er hvernig slík rök geta haft áhrif á heildarmat samrunans samkvæmt íslenskum og evrópskum rétti. Loks er horft til raunverulegra samrunamála, bæði hérlendis og erlendis, til að sýna hvernig kenningar og viðmið eru beitt í framkvæmd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sólrún Soffía Arnardóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50874
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50874

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sólrún Soffía Arnardóttir 2001-. Efnislegt mat á láréttum samrunum : með hliðsjón af helstu skaðakenningum. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50874