Reykjavík University
Jafnvægi sköpunar og nýsköpunar : Tækifæri og takmarkanir DSM tilskipunarinnar
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin rannsakar hvernig 3. og 4. gr. DSM tilskipunar Evrópusambandsins afmarka rétt til texta- og gagnanáms og hvort sú afmörkun uppfylli yfirlýst markmið tilskipunarinnar um stafræna samræmingu, rannsóknir og nýsköpun. Byggt er á lögfræðilegri aðferðafræði sem sameinar skýringu laga, greiningu skýringargagna, samanburð milli réttarkerfa og dómaframkvæmd Evrópudómstólsins. Í fyrsta hluta er lagaleg útfærsla undanþáguákvæðanna skoðuð. Skyldubundin undanþága 3. gr. veitir rannsóknar- og menningararfsstofnunum víðtækan rétt að því gefnu að þeir hafi lögmætan aðgang að efni. Almenn undanþága 4. gr. er háð bæði lögmætum aðgangi og áskilnaði rétthafa og er því takmarkaðri í eðli sínu. Annar hluti greinir framkvæmd og réttaróvissu vegna undanþáguákvæðanna með áherslu á skilyrðið um lögmætan aðgang, afþökkunarrétt rétthafa og tæknilegar hindranir. Fram kemur að óljósar reglur og ósamræmi milli aðildarríkja ógna réttaröryggi notenda og geta því dregið úr nýsköpun og samræmingu, sérstaklega þegar tæknilegar hindranir koma í veg fyrir lögmætar texta- og gagnanámsaðgerðir. Þriðji hluti fjallar um texta- og gagnanám við þjálfun gervigreindarlíkana. LAION málið og tengsl gervigreindarreglugerðarinnar benda til þess að slík þjálfun falli almennt undir undanþágurnar, þó er enn óvissa um endanlega notkun þjálfaðra líkana og ábyrgð þróunaraðila Niðurstöður benda til þess að tvískipting undanþáganna feli í sér óhóflega mismunum milli notenda undanþáguákvæðanna og ná ekki fullu jafnvægi milli hagsmuna rétthafa og notenda undanþáguákvæðanna. Ófyrirsjáanleiki, tæknilegar hindranir og ósamræmi aðildarríkja í innleiðingu og túlkun grafa undan markmiðum tilskipunarinnar og geta leitt til aukinnar notkunar ólögmætra gagna og eftirlitshögnunar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðfinnur Geirdal 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50847
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50847