Reykjavík University
Barnvæn réttarvarsla : er meðferð mála sakhæfra barna nægjanlega barnvæn á Íslandi?
Abstract
dc:description.abstractBarnvæn réttarvarsla: Er meðferð mála sakhæfra barna nægjanlega barnvæn á Íslandi? Afbrot barna á Íslandi eru orðin alvarlegri þótt þeim fari ekki fjölgandi. Af alvarlegri brotum leiðir að fleiri börn þurfa að sitja í gæsluvarðhaldi og fá á sig dóma. Í þessari ritgerð er leitast við að kanna hvort meðferð mála sakhæfra barna sé nægjanlega barnvæn á Íslandi, hvort lög um meðferð sakamála nr. 88/2008, standist ákvæði 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, sem kveður á um skyldur ríkisins til að vernda börn. Þá verður einnig fjallað um hvort gerður sé nægjanlega mikill greinarmunur á börnum sem eru sakborningar í sakamálum og fullorðnum. Ljóst er að börn eru viðkvæmur hópur samfélagsins og í sögulegu samhengi er ekki langt síðan viðurkennt var að þau bæru sjálfstæð réttindi. Þegar börn fremja afbrot er að mörgu að huga en mikilvægast af öllu er að gæta réttinda þeirra til hins ýtrasta. Farið verður yfir réttindi barna sem brjóta af sér. Þau eru vernduð í stjórnarskrá, almennum lögum og ýmsum mannréttindasáttmálum, svo sem Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Leiðbeiningareglur Evrópuþingsins og ráðsins um barnvæna réttarvörslu, sem er mikilvæg réttarheimild þegar kemur að meðferð mála barna í réttarkerfinu. Reglurnar fjalla ítarlega um réttindi sakhæfra barna og hvað gera þurfi til þess að meðferð mála þeirra sé nógu barnvæn. Farið verður yfir framkvæmdina hérlendis, þ.e. meðferð mála sakhæfra barna á rannsóknarstigi og dómstigi. Meðferð mála sakhæfra barna á Íslandi er ekki nægjanlega barnvæn, réttindi þeirra eru ekki virt líkt og ber að gera. Þá má segja að lög um meðferð sakamála standist ekki ákvæði 3. mgr. 76. gr. stjskr. þar sem ekki er gerður fullnægjandi greinarmunur á börnum sem sakborningum og fullorðnum. Ráðast þarf í ítarlega skoðun á réttarkerfinu til þess að hægt sé að segja að réttarkerfið, bæði dómskerfið og meðferð mála hjá lögreglu, sé nógu barnvænt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Laufey Ýr Birkisdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50828
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50828