Back to results

Reykjavík University

Áhrif eldgosanna á Reykjanesskaga á fasteignamarkaðinn á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Aníta Björk Heiðarsdóttir, sem útskrifast með B.Sc. í viðskiptafræði með lögfræði sem aukagrein, og Valeria Drumea, sem útskrifast með B.Sc. í viðskiptafræði, rannsökuðu áhrif náttúruhamfaranna á Reykjanesskaga og áhrif þeirra á fasteignamarkaðinn á Íslandi. Síðastliðin ár hafa 11 eldgos átt sér stað á Reykjanesskaga og eru afleiðingar náttúruhamfaranna margþættar. Fasteignamarkaðurinn á Íslandi einkennist af sterku eignarhaldi og takmörkuðum leigumarkaði sem er frábrugðið mörgum samanburðarlöndum. Difference in Difference aðferðinni var beitt í rannsókninni til að greina áhrif náttúruhamfaranna á fasteignamarkaðinn hér á landi. Sérstök áhersla var lögð á að rannsaka hvort náttúruhamfarirnar hafi leitt til aukinnar eftirspurnar og verðhækkana á fasteignamarkaðinum. Einnig var tekið tillit til lagabreytingarinnar sem tók gildi þann 28. febrúar 2024 og skoðað möguleg áhrif hennar á fasteignamarkaðinn. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að eftirspurn hafi aukist og að fasteignaverð hafi hækkað í kjölfar lagabreytingarinnar, en ekki er hægt að fullyrða að hún ein og sér hafi orsakað þessa þróun. Frekari rannsóknir eru því nauðsynlegar til að staðfesta niðurstöður rannsóknarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Valeria Drumea 2002-
  • Aníta Björk Heiðarsdóttir 2004-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50650
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50650

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valeria Drumea 2002-; Aníta Björk Heiðarsdóttir 2004-. Áhrif eldgosanna á Reykjanesskaga á fasteignamarkaðinn á Íslandi. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50650