Reykjavík University
Bankaábyrgðir : réttaráhrif URDG 758 á efndaábyrgðir samanborið við íslenska réttarframkvæmd
Abstract
dc:description.abstractTilgangur með ritgerð þessari er að varpa ljós á mismunandi réttaráhrif bankaábyrgða, nánar tiltekið efndaábyrgða, eftir því hvort samræmdar vinnureglur Alþjóða viðskiptaráðsins (e. International Chamber of Commerce, ICC), Uniform Rules for Demand Guarantee, no. 758 (URDG 758) eigi við um ábyrgðina eða ekki. Reglurnar eru valkvæðar og tíðkast það í framkvæmd að láta þær ekki gilda um tiltekna ábyrgð. Við slíkar aðstæður mun reyna á íslenska réttarframkvæmd um kröfuábyrgðir sem byggist á meginreglum samninga- og kröfuréttar. Í þessari ritgerð er borið saman réttarframkvæmd efndaábyrgða eftir því hvort URDG 758 reglurnar eiga við um ábyrgðir eða ekki. Einnig er litið til samspil URDG 758 reglnanna og íslenska réttarins. Almennt er talið að URDG 758 reglurnar séu heppilegur kostur í millilandaviðskiptum til að tryggja fyrirsjáanleika og minnkar þar með áhættu í viðskiptum. Hvað varðar ábyrgðir sem stafa af innlendu réttarsambandi, getur talist varhugarvert að notfæra sér reglurnar á tilteknum sviðum, til að mynda þar sem lögfestar reglur geta haft áhrif með beinum eða óbeinum hætti á réttarframkvæmd ábyrgða. Áður en ákveðið er að notfæra sér reglur URDG 758 er mikilvægt að taka mið af heildaraðstæðum að hverju sinni, svo sem undirliggjandi réttarsambandi, aðilum og þá hvaða áhættu er verið að reyna takmarka. Jafnframt getur haft áhrif á túlkun ábyrgðarinnar, hver fer fram á að URDG 758 eigi að taka til tiltekinnar ábyrgðar, þá sérstaklega þegar aðili er fjármálastofnun sem almennt telst vera í sterkari samningsstöðu gagnvart viðskiptavinum sínum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vilhjálmur Hrafn Stefánsson 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49100
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49100