Back to results

Reykjavík University

Skilyrði skilameðferðar samkvæmt 35. gr. laga nr. 70/2020 um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Skilyrði skilameðferðar samkvæmt 35. gr. laga nr. 70/2020 um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja Skilavald Seðlabanka Íslands hefur á grundvelli 35. gr. laga nr. 70/2020 um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja heimild til að beita skilaaðgerðum vegna yfirvofandi falls banka. Í skilaaðgerðum felst meðal annars að skilavaldið getur ákveðið að færa niður hlutafé og kröfur lánardrottna eða eftir atvikum umbreyta þeim í hlutafé. Skilavaldið getur einnig framselt banka í skilameðferð til einkaaðila eða brúarstofnunar, í heild eða að hluta. Ákvörðun um skilameðferð er háð þremur skilyrðum. Í ritgerðinni er ljósi varpað á þessi skilyrði, samspil þeirra og tilgang. Í fyrsta lagi er fjallað um það frumskilyrði skilameðferðar að banki sé á fallanda fæti. Opin og víðtæk skilgreining hugtaksins fórnar að vissu marki fyrirsjáanleika til þess að skilavaldið hafi svigrúm til að beita skilaaðgerðum nægilega snemma. Í öðru lagi er gerð grein fyrir vægari úrræðum sem gætu afstýrt falli banka, en samkvæmt öðru skilyrði skilameðferðar þarf skilavaldið að fullvissa sig um að slík úrræði dugi ekki. Í þriðja lagi er sjónum beint að þriðja skilyrði skilameðferðar, sem er almannahagsmunir. Af skilyrðinu leiðir að skilavaldið ætti aðeins að grípa til skilaaðgerða vegna fárra útvaldra banka sem gætu ógnað fjármálastöðugleika ef þeir myndu falla. Mat skilavaldsins á skilyrðinu um almannahagsmuni felst meðal annars því að spyrja hvort banki stundar „nauðsynlega starfsemi“ og hvort fall hans myndi hafa „veruleg neikvæð áhrif á fjármálakerfið“. Stærð banka, markaðshlutdeild, kerfislegt mikilvægi og smitleiðir til annarra banka og raunhagkerfisins, eru meðal helstu þátta sem ráða för við mat skilavaldsins á almannahagsmunum. Í ritgerðinni er útskýrt að þriðja skilyrði skilameðferðar hefði mátt innleiða með skýrari hætti í íslenskan rétt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Alfreð Sigurðsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46169
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46169

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Alfreð Sigurðsson 2000-. Skilyrði skilameðferðar samkvæmt 35. gr. laga nr. 70/2020 um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46169