Back to results

Reykjavík University

Agile aðferðafræði og vendinám : yfirsýn og samábyrgð kennara á verkefnaskilum nemenda

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er Agile skoðað innan veggja grunnskóla með þeim tilgangi að kanna hvort aðferðafræðin bæti sameiginlega yfirsýn kennara yfir verkefnastöðu nemenda og auki samábyrgð þeirra á verkefnaskilum í sjálfstætt starfandi grunnskóla sem notast við vendinám. Agile aðferðafræðin með vendinámi er viðfangsefni sem ekki hefur verið mikið rannsakað en Agile verkefnastjórnun hefur að geyma tól sem er hægt er að yfirfæra frá framleiðslueiningum og hugbúnaðargerð yfir í stjórnun annarra eininga. Agile aðferðafræðin er ekki gömul en hefur þó notið mikilla vinsælda enda býr hún yfir einföldum tólum eins og Kanban sem fellur líka undir straumlínustjórnun en það tól er vinsælt vegna einfaldleikans og nálgun þess á að útrýma sóun á auðlindum eins og tíma og fjármagni. Scrum er orðið vel þekkt í hönnun og hugbúnaðargeiranum og eins og Kanban hafa vinsældir náð út fyrir þann ramma og fleiri tegundir fyrirtækja farnar að nýta sér aðferðafræðina. Scrumban er samsuða þessarra tveggja aðferðafræða þar sem þeir eiginleikar úr aðferðafræðunum sem henta best eru nýttar í verkefnastjórnun hjá margvíslegum fyrirtækjum. Markmið þessarrar ritgerðar er að kanna hvort Agile aðferðafræðin passi með vendinámi og þá hvort Kanban tafla hjálpi kennurum að öðlast yfirsýn og samábyrgð yfir verkefnaskil nemenda í vendinámi. Einnig er skoðað hvort einföld Kanban tafla fyrir kennara í sjálfstætt starfandi skóla nái að kveikja áhuga á áframhaldandi innleiðingu á Agile aðferðafræðinni fyrir skipulagsheildina og nemendur í framhaldi af því. Einblínt er á upplifun kennara í þessari rannsókn en nemendur eru ekki þátttakendur nema að því leiti að verkefni eru lögð fyrir þá og útkoman skoðuð með viðtölum við kennarana og viðhorf þeirra kannað út frá rannsóknarspurningunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Sturlaugsdóttir 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45431
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45431

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Sturlaugsdóttir 1968-. Agile aðferðafræði og vendinám : yfirsýn og samábyrgð kennara á verkefnaskilum nemenda. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45431