Reykjavík University
Skyldur stjórnarmanna í tengslum við fjárhagserfiðleika og/eða ógjaldfærni hlutafélaga
Abstract
dc:description.abstractSkyldur stjórnarmanna í tengslum við fjárhagserfiðleika og/eða ógjaldfærni hlutafélaga. Líkt og nafnið gefur til kynna fjallar ritgerðin um þær skyldur sem hvíla á herðum stjórnarmanna, þegar hlutafélag glímir við fjárhagserfiðleika og eftir atvikum ógjaldfærni. Þegar um slíkar áskoranir er að ræða, má ætla að vandasamt geti verið fyrir stjórnarmenn að átta sig á því hverjar þær skyldur eru, meðal annars með tilliti til hagsmuna hluthafa og kröfuhafa. Í ritgerðinni er aðallega horft til íslenskra réttarreglna, þar á meðal reglur hlutafélagalaga og óskrifaðra meginreglna. Eru þær túlkaðar með hliðsjón af dómaframkvæmd og fræðiskrifum. Jafnframt er litið til erlends réttar til samanburðar á þeim réttarreglum sem gilda þar í landi. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að stjórnarmenn hafa fimm grundvallarskyldum að gegna við slíkar aðstæður en af dómaframkvæmd Hæstaréttar leiðir að vægi þeirra kann að vera mismunandi. Í fyrsta lagi kemur trúnaðarskylda stjórnarmanna til skoðunar. Samkvæmt henni eiga stjórnarmenn að hafa hagsmuni félagsins að leiðarljósi við störf sín en þegar félag glímir við fjárhagserfiðleika hefur almennt verið viðurkennt að skyldan beinist fremur að kröfuhöfum í stað félagsins. Í öðru lagi bera stjórnarmenn ríka eftirlitsskyldu gagnvart starfsemi og bókum félagsins. Í þriðja lagi kemur það í hlut félagsstjórnar að ganga úr skugga um að eignir færist ekki frá félaginu með ótilhlýðilegum hætti. Í fjórða lagi ber þeim skylda til að grípa til aðgerða þegar eigið fé félagsins er orðið minna en helmingur af skráðu hlutafé þess. Í fimmta lagi er þeim skylt að afhenda félagið til gjaldþrotaskipta þegar því er ekki stætt að standa við skuldbindingar sínar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Marvin Harrý Guðmundsson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44431
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44431