Back to results

Reykjavík University

Agamál í grunnskólum : meðferð mála vegna brota á skólareglum í grunnskólum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að skoða lög, reglugerðir og alþjóðasamninga sem taka til réttar barna til menntunar sem og verndar gegn ofbeldi eða illri meðferð. Leitað verður svara við því, hvort að meðferð agamála í skólum, sem og eftirlit með meðferð mála vegna agabrota í grunnskólum, séu í samræmi við ákvæði laga, núgildandi aðalnámskrá, sem og þær alþjóðlegu skuldbindingar á sviði mannréttinda sem Ísland hefur undirgengist. Ritgerðin var unnin með því að rannsaka efni laga og reglugerða sem varða grunnskóla og meta hvort börnum væru tryggð þau réttindi sem lög um rétt barna til menntunar og verndar gegn illri meðferð segja til um. Þá var framkvæmd hér á landi skoðuð og samanburður gerður á eftirliti með agamálum í grunnskólum á Íslandi og í Svíþjóð. Loks var dregin upp sú mynd sem að fordæmi Mannréttindadómstóls Evrópu hafa gefið um réttinn til menntunar og vernd gegn vanvirðandi háttsemi. Niðurstaða ritgerðarinnar er að þrátt fyrir að lög og reglugerðir grunnskólalaga skilgreini og fjalli um réttindi barna samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins um menntun og velferð í skólaumhverfi, þá er eftirlit með agamálum í grunnskólum ábótavant. Á það við um það eftirlitskerfi sem að skólayfirvöld hafa með þeim úrræðum sem notuð eru innan skólanna vegna brota á skólareglum. Gerður var samanburður við Svíþjóð en þar hefur verið settur á laggirnar eftirlitsaðili, sem hefur það hlutverk að taka til meðferðar kvartanir vegna ofbeldis eða illrar meðferðar í grunnskólum. Tilkoma þess aðila hefur orðið til þess að skýra réttarstöðuna enn frekar og þau dómsmál sem eftirlitsstofnunin hefur rekið fyrir dómstólum hafa veitt mikilvægi fordæmi og skýrt hverjar eru heimildir starfsfólks skóla til inngripa gagnvart nemendum vegna aga- eða hegðunarvanda. Er það því niðurstaða þessarar ritgerðar að hér á landi þyrfti að vera til staðar sambærilegur óháður og sjálfstæður eftirlitsaðili með réttindum barna innan grunnskólanna, sem að hafi heimildir til þess að láta einstaklingsmál sig varða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Ósk Alexandersdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42886
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42886

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Ósk Alexandersdóttir 1991-. Agamál í grunnskólum : meðferð mála vegna brota á skólareglum í grunnskólum. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42886