Reykjavík University
Hvernig eru gæði í geðheilbrigðisþjónustu metin? : Hvernig hafa gæðavísar í geðheilbrigðisþjónustu verið skilgreindir og hvað liggur þeim til grundvallar?
Abstract
dc:description.abstractGæði í heilbrigðisþjónustu gefa mikilvægar upplýsingar um þjónustuna fyrir notendur hennar og hagsmunaaðila. Gæði heilbrigðisþjónustu getur sagt til um hvort þjónustan sé að skila því sem henni er ætlað að skila og hvort hún uppfyllir væntingar notenda hennar. Gæðavísar eru mælitæki sem notaðir eru til að mæla gæði þjónustunnar. Tilgangur verkefnisins er að skoða undirliggjandi hugmyndafræði og skilgreiningar á gæðavísum í geðheilbrigðisþjónustunni í mismunandi löndum. Verkefnið er í eðli sínu upplýsingaöflun og greining heimilda sem varpa ljósi á rannsóknarspurninguna: „Hvernig hafa gæðavísar í geðheilbrigðisþjónustu verið skilgreindir og hvað liggur þeim til grundvallar?“ Aðferðafræði verkefnisins byggir á hugmyndafræði bestu útfærslu (e. benchmarking best practice) þar sem leitast er við að safna upplýsingum og rýna í útfærslu þeirra sem hafa náð sem bestum árangri í skilgreiningum og útfærslu á gæðavísum sem meta geðheilsu. Þau lönd sem sjónum er beint að eru Ísland, Skotland, Noregur og Ástralía. Einnig er farið í saumana á þeim verkefnum sem OECD samtökin hafa ráðist í með tilliti til gæðavísa. Niðurstöður bentu til misræmis í skilgreiningum á gæðavísum milli landa. Í sumum tilfellum var aðgengi að niðurstöðum takmarkað og/eða skráningum ábótavant. Misræmið endurspeglar ólíka uppbyggingu heilbrigðiskerfa hvað varðar skipulag þeirra og umfang. Tillögur voru settar fram fyrir áframhaldandi þróun á gæðavísum fyrir íslenskan veruleika og byggðu þær á fyrirliggjandi upplýsingum
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Heiða Ósk Garðarsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42050
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42050