Back to results

Reykjavík University

Hvernig eru gæði í geðheilbrigðisþjónustu metin? : Hvernig hafa gæðavísar í geðheilbrigðisþjónustu verið skilgreindir og hvað liggur þeim til grundvallar?

Abstract

dc:description.abstract

Gæði í heilbrigðisþjónustu gefa mikilvægar upplýsingar um þjónustuna fyrir notendur hennar og hagsmunaaðila. Gæði heilbrigðisþjónustu getur sagt til um hvort þjónustan sé að skila því sem henni er ætlað að skila og hvort hún uppfyllir væntingar notenda hennar. Gæðavísar eru mælitæki sem notaðir eru til að mæla gæði þjónustunnar. Tilgangur verkefnisins er að skoða undirliggjandi hugmyndafræði og skilgreiningar á gæðavísum í geðheilbrigðisþjónustunni í mismunandi löndum. Verkefnið er í eðli sínu upplýsingaöflun og greining heimilda sem varpa ljósi á rannsóknarspurninguna: „Hvernig hafa gæðavísar í geðheilbrigðisþjónustu verið skilgreindir og hvað liggur þeim til grundvallar?“ Aðferðafræði verkefnisins byggir á hugmyndafræði bestu útfærslu (e. benchmarking best practice) þar sem leitast er við að safna upplýsingum og rýna í útfærslu þeirra sem hafa náð sem bestum árangri í skilgreiningum og útfærslu á gæðavísum sem meta geðheilsu. Þau lönd sem sjónum er beint að eru Ísland, Skotland, Noregur og Ástralía. Einnig er farið í saumana á þeim verkefnum sem OECD samtökin hafa ráðist í með tilliti til gæðavísa. Niðurstöður bentu til misræmis í skilgreiningum á gæðavísum milli landa. Í sumum tilfellum var aðgengi að niðurstöðum takmarkað og/eða skráningum ábótavant. Misræmið endurspeglar ólíka uppbyggingu heilbrigðiskerfa hvað varðar skipulag þeirra og umfang. Tillögur voru settar fram fyrir áframhaldandi þróun á gæðavísum fyrir íslenskan veruleika og byggðu þær á fyrirliggjandi upplýsingum

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiða Ósk Garðarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42050
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42050

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiða Ósk Garðarsdóttir 1986-. Hvernig eru gæði í geðheilbrigðisþjónustu metin? : Hvernig hafa gæðavísar í geðheilbrigðisþjónustu verið skilgreindir og hvað liggur þeim til grundvallar?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42050