Back to results

Reykjavík University

Styrktarþjálfun knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Styrkur og afl knattspyrnumanna getur haft mikil áhrif á afkastagetu þeirra. Knattspyrna krefst mikillar líkamlegrar getu hjá leikmönnum og er því eitt af mikilvægustu markmiðum undirbúningstímabilsins að bæta sértækan knattspyrnustyrk. Þess vegna hefur verið mælt með innleiðingu á sértækri knattspyrnustyrktarþjálfun inn í æfingarprógramm knattspyrnumanna. Styrktarþjálfarar sem að vinna með knattspyrnumönnum þurfa að skilja hvaða líkamlegu kröfur knattspyrnuiðkun krefst af leikmönnum og taka mið af því við skipulagningu styrktaræfinga til þess að æfingaáætlunin þjóni sínum tilgangi. Rannsókn var gerð á styrktarþjálfurum knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi 2021. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt en fyrri hluti hennar sneri að því að skoða hvernig styrktarþjálfun knattspyrnuliðanna var háttað og seinni hlutinn kannaði hvernig styrktarþjálfarar liðanna stæðu varðandi menntun, hlutverk innan liðsins og skoða markmið styrktarþjálfunarinnar. Notaðar voru megindlegar rannsóknaraðferðir í formi könnunarsniðs til þess að safna saman gögnum um styrktarþjálfara allra knattspyrnuliðanna. Helstu niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar leiddu í ljós að 95,8% knattspyrnuliðanna voru með styrktarþjálfara af einhverju tagi. Mikill munur var á vinnustundum og viðveru styrktarþjálfara eftir því hvort að þeir störfuðu með liði í efstu eða fyrstu deild. Það var hins vegar ekki mikill munur á fjölda styrktaræfinga á viku hjá liðunum á milli efstu og fyrstu deildar. Því mætti álykta að viðvera styrktarþjálfara með liðinu hafi áhrif á gæði styrktarþjálfunarinnar. Í seinni hluta rannsóknarinnar kom fram að töluvert fleiri styrktarþjálfarar í efstu deild, miðað við í fyrstu deild voru með háskólamenntun á sviðinu og styrktarþjálfarar í efstu deild sinntu gjarnan fleiri hlutverkum hjá liðinu heldur en eingöngu styrktaræfingunum. Markmið styrktarþjálfunarinnar voru nánast eins hjá öllum styrktarþjálfurunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Freyja Hilmarsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41893
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41893

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Freyja Hilmarsdóttir 1998-. Styrktarþjálfun knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41893