{"id":{"repo_id":"reykjavik","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/41893"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/reykjavik/oai:skemman.is:1946/41893","repository":{"repo_id":"reykjavik","name":"Reykjavík University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Styrktarþjálfun knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi","abstract":"Styrkur og afl knattspyrnumanna getur haft mikil áhrif á afkastagetu þeirra. Knattspyrna krefst mikillar líkamlegrar getu hjá leikmönnum og er því eitt af mikilvægustu markmiðum undirbúningstímabilsins að bæta sértækan knattspyrnustyrk. Þess vegna hefur verið mælt með innleiðingu á sértækri knattspyrnustyrktarþjálfun inn í æfingarprógramm knattspyrnumanna. Styrktarþjálfarar sem að vinna með knattspyrnumönnum þurfa að skilja hvaða líkamlegu kröfur knattspyrnuiðkun krefst af leikmönnum og taka mið af því við skipulagningu styrktaræfinga til þess að æfingaáætlunin þjóni sínum tilgangi. Rannsókn var gerð á styrktarþjálfurum knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi 2021. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt en fyrri hluti hennar sneri að því að skoða hvernig styrktarþjálfun knattspyrnuliðanna var háttað og seinni hlutinn kannaði hvernig styrktarþjálfarar liðanna stæðu varðandi menntun, hlutverk innan liðsins og skoða markmið styrktarþjálfunarinnar. Notaðar voru megindlegar rannsóknaraðferðir í formi könnunarsniðs til þess að safna saman gögnum um styrktarþjálfara allra knattspyrnuliðanna. Helstu niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar leiddu í ljós að 95,8% knattspyrnuliðanna voru með styrktarþjálfara af einhverju tagi. Mikill munur var á vinnustundum og viðveru styrktarþjálfara eftir því hvort að þeir störfuðu með liði í efstu eða fyrstu deild. Það var hins vegar ekki mikill munur á fjölda styrktaræfinga á viku hjá liðunum á milli efstu og fyrstu deildar. Því mætti álykta að viðvera styrktarþjálfara með liðinu hafi áhrif á gæði styrktarþjálfunarinnar. Í seinni hluta rannsóknarinnar kom fram að töluvert fleiri styrktarþjálfarar í efstu deild, miðað við í fyrstu deild voru með háskólamenntun á sviðinu og styrktarþjálfarar í efstu deild sinntu gjarnan fleiri hlutverkum hjá liðinu heldur en eingöngu styrktaræfingunum. Markmið styrktarþjálfunarinnar voru nánast eins hjá öllum styrktarþjálfurunum.","abstract_html":"Styrkur og afl knattspyrnumanna getur haft mikil áhrif á afkastagetu þeirra. Knattspyrna krefst mikillar líkamlegrar getu hjá leikmönnum og er því eitt af mikilvægustu markmiðum undirbúningstímabilsins að bæta sértækan knattspyrnustyrk. Þess vegna hefur verið mælt með innleiðingu á sértækri knattspyrnustyrktarþjálfun inn í æfingarprógramm knattspyrnumanna. Styrktarþjálfarar sem að vinna með knattspyrnumönnum þurfa að skilja hvaða líkamlegu kröfur knattspyrnuiðkun krefst af leikmönnum og taka mið af því við skipulagningu styrktaræfinga til þess að æfingaáætlunin þjóni sínum tilgangi. Rannsókn var gerð á styrktarþjálfurum knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi 2021. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt en fyrri hluti hennar sneri að því að skoða hvernig styrktarþjálfun knattspyrnuliðanna var háttað og seinni hlutinn kannaði hvernig styrktarþjálfarar liðanna stæðu varðandi menntun, hlutverk innan liðsins og skoða markmið styrktarþjálfunarinnar. Notaðar voru megindlegar rannsóknaraðferðir í formi könnunarsniðs til þess að safna saman gögnum um styrktarþjálfara allra knattspyrnuliðanna. Helstu niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar leiddu í ljós að 95,8% knattspyrnuliðanna voru með styrktarþjálfara af einhverju tagi. Mikill munur var á vinnustundum og viðveru styrktarþjálfara eftir því hvort að þeir störfuðu með liði í efstu eða fyrstu deild. Það var hins vegar ekki mikill munur á fjölda styrktaræfinga á viku hjá liðunum á milli efstu og fyrstu deildar. Því mætti álykta að viðvera styrktarþjálfara með liðinu hafi áhrif á gæði styrktarþjálfunarinnar. Í seinni hluta rannsóknarinnar kom fram að töluvert fleiri styrktarþjálfarar í efstu deild, miðað við í fyrstu deild voru með háskólamenntun á sviðinu og styrktarþjálfarar í efstu deild sinntu gjarnan fleiri hlutverkum hjá liðinu heldur en eingöngu styrktaræfingunum. Markmið styrktarþjálfunarinnar voru nánast eins hjá öllum styrktarþjálfurunum.","abstract_has_math":false,"creators":["Freyja Hilmarsdóttir 1998-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn í Reykjavík"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2022,"date_issued":"2022-06-14T10:05:00Z","date_published":"2022-06-14T10:05:00Z","updated_at":"2026-07-27T20:41:01Z","subjects":["Íþróttafræði","Knattspyrnumenn","Styrktarþjálfun"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/41893","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn í Reykjavík"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Freyja Hilmarsdóttir 1998-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2022-06-14T10:04:59Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2022-06-14T10:04:59Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2022-06-14T10:05:00Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Íþróttafræði","Knattspyrnumenn","Styrktarþjálfun"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/41893"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Styrkur og afl knattspyrnumanna getur haft mikil áhrif á afkastagetu þeirra. Knattspyrna krefst mikillar líkamlegrar getu hjá leikmönnum og er því eitt af mikilvægustu markmiðum undirbúningstímabilsins að bæta sértækan knattspyrnustyrk. Þess vegna hefur verið mælt með innleiðingu á sértækri knattspyrnustyrktarþjálfun inn í æfingarprógramm knattspyrnumanna. Styrktarþjálfarar sem að vinna með knattspyrnumönnum þurfa að skilja hvaða líkamlegu kröfur knattspyrnuiðkun krefst af leikmönnum og taka mið af því við skipulagningu styrktaræfinga til þess að æfingaáætlunin þjóni sínum tilgangi. Rannsókn var gerð á styrktarþjálfurum knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi 2021. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt en fyrri hluti hennar sneri að því að skoða hvernig styrktarþjálfun knattspyrnuliðanna var háttað og seinni hlutinn kannaði hvernig styrktarþjálfarar liðanna stæðu varðandi menntun, hlutverk innan liðsins og skoða markmið styrktarþjálfunarinnar. Notaðar voru megindlegar rannsóknaraðferðir í formi könnunarsniðs til þess að safna saman gögnum um styrktarþjálfara allra knattspyrnuliðanna. Helstu niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar leiddu í ljós að 95,8% knattspyrnuliðanna voru með styrktarþjálfara af einhverju tagi. Mikill munur var á vinnustundum og viðveru styrktarþjálfara eftir því hvort að þeir störfuðu með liði í efstu eða fyrstu deild. Það var hins vegar ekki mikill munur á fjölda styrktaræfinga á viku hjá liðunum á milli efstu og fyrstu deildar. Því mætti álykta að viðvera styrktarþjálfara með liðinu hafi áhrif á gæði styrktarþjálfunarinnar. Í seinni hluta rannsóknarinnar kom fram að töluvert fleiri styrktarþjálfarar í efstu deild, miðað við í fyrstu deild voru með háskólamenntun á sviðinu og styrktarþjálfarar í efstu deild sinntu gjarnan fleiri hlutverkum hjá liðinu heldur en eingöngu styrktaræfingunum. Markmið styrktarþjálfunarinnar voru nánast eins hjá öllum styrktarþjálfurunum."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Styrktarþjálfun knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn í Reykjavík"],"dc:creator":["Freyja Hilmarsdóttir 1998-"],"dc:date.accessioned":["2022-06-14T10:04:59Z"],"dc:date.available":["2022-06-14T10:04:59Z"],"dc:date.issued":["2022-06-14T10:05:00Z"],"dc:description.abstract":["Styrkur og afl knattspyrnumanna getur haft mikil áhrif á afkastagetu þeirra. Knattspyrna krefst mikillar líkamlegrar getu hjá leikmönnum og er því eitt af mikilvægustu markmiðum undirbúningstímabilsins að bæta sértækan knattspyrnustyrk. Þess vegna hefur verið mælt með innleiðingu á sértækri knattspyrnustyrktarþjálfun inn í æfingarprógramm knattspyrnumanna. Styrktarþjálfarar sem að vinna með knattspyrnumönnum þurfa að skilja hvaða líkamlegu kröfur knattspyrnuiðkun krefst af leikmönnum og taka mið af því við skipulagningu styrktaræfinga til þess að æfingaáætlunin þjóni sínum tilgangi. Rannsókn var gerð á styrktarþjálfurum knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi 2021. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt en fyrri hluti hennar sneri að því að skoða hvernig styrktarþjálfun knattspyrnuliðanna var háttað og seinni hlutinn kannaði hvernig styrktarþjálfarar liðanna stæðu varðandi menntun, hlutverk innan liðsins og skoða markmið styrktarþjálfunarinnar. Notaðar voru megindlegar rannsóknaraðferðir í formi könnunarsniðs til þess að safna saman gögnum um styrktarþjálfara allra knattspyrnuliðanna. Helstu niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar leiddu í ljós að 95,8% knattspyrnuliðanna voru með styrktarþjálfara af einhverju tagi. Mikill munur var á vinnustundum og viðveru styrktarþjálfara eftir því hvort að þeir störfuðu með liði í efstu eða fyrstu deild. Það var hins vegar ekki mikill munur á fjölda styrktaræfinga á viku hjá liðunum á milli efstu og fyrstu deildar. Því mætti álykta að viðvera styrktarþjálfara með liðinu hafi áhrif á gæði styrktarþjálfunarinnar. Í seinni hluta rannsóknarinnar kom fram að töluvert fleiri styrktarþjálfarar í efstu deild, miðað við í fyrstu deild voru með háskólamenntun á sviðinu og styrktarþjálfarar í efstu deild sinntu gjarnan fleiri hlutverkum hjá liðinu heldur en eingöngu styrktaræfingunum. Markmið styrktarþjálfunarinnar voru nánast eins hjá öllum styrktarþjálfurunum."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/41893"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Íþróttafræði","Knattspyrnumenn","Styrktarþjálfun"],"dc:title":["Styrktarþjálfun knattspyrnuliða í efstu og fyrstu deild karla á Íslandi"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T20:41:01Z"}